Bjartsýni í Bandaríkjunum 29. mars 2006 13:47 Mynd/AFP
Bandaríkjamenn eru sagðir bjartsýnir um efnahag þjóðarinnar og hefur væntingavísitala neytenda ekki verið hærri í fjögur ár. Búist var við því að væntingavísitalan færi í 102 stig í þessum mánuði. Hækkunin nam hins vegar 4,5 punktum og endaði hún í 107,2 stigum. Í maí árið 2002 mældist væntingavísitalan í Bandaríkjunum 110,3 stig. Í síðasta mánuði var væntingavísitalan í Bandaríkjunum 102,7 stig og hafði hún lækkað um 4,1 punkt frá því í janúar. Bandarískir sérfræðingar um neytendamál segja niðurstöðurnar gleðiefni enda sé það merki um aukinn efnahagsbata í Bandaríkjunum. Flestir þeirra sem þátt tóku í könnun bandaríska neytendaráðsins um horfur í efnahagsmálum, eða 28,4 prósent, sögðu atvinnuleysi minnka á næstunni. Í síðustu könnun í febrúar sögðu 27,4 prósent atvinnuleysið minnka. Þá sögðu 20,7 prósent hins vegar að erfitt verði að finna vinnu á næstu mánuðum. Það er 0,5 prósentustigum fleiri en í síðustu könnun.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Neytendur Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Neytendur Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Viðskipti innlent „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Samstarf Fleiri fréttir Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent