Fangaréttarhöld eru lögleysa 30. júní 2006 07:15 Fangar í Guantanamo Réttarhöldin yfir þeim brjóta í bága við bæði bandarísk herlög og Genfarsáttmálana. MYND/AP
Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í gær að þeirri niðurstöðu að stríðsglæparéttarhöld yfir föngum sem hafa verið í haldi í bandarískum fangabúðum á Kúbu, brjóti bæði í bága við bandarísk herlög og Genfarsáttmálana. Dómstóllinn segir að George W. Bush Bandaríkjaforseti hafi ekki haft neina lagalega heimild til þess að setja á stofn sérstaka herdómstóla til þess að rétta yfir mönnunum. Bush sagðist í gær ætla að leita eftir samþykki Bandaríkjaþings um að þessir fangar verði dregnir fyrir hefðbundna herdómstóla, og vonast til þess að það fyrirkomulag hljóti náð fyrir augum hæstaréttar. Fyrir tveimur árum komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að bandarísk stjórnvöld hefðu enga heimild til þess að hneppa grunaða hryðjuverkamenn í fangelsi og halda þeim þar ótímabundið án þess að þeir kæmu fyrir dómara eða hefðu aðgang að lögmanni. Nú kemst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu, að þau réttarhöld sem haldin hafa verið yfir sumum fanganna hafi ekki haft neina lagalega stoð. Í úrskurði dómstólsins segir þó ekkert um það hvort loka eigi fangabúðunum, heldur varðar úrskurðurinn aðeins ólögmæti réttarhaldanna yfir föngunum. Dómararnir í Hæstarétti voru ekki á einu máli um niðurstöðuna í gær. Fimm þeirra standa að henni, en þrír eru á móti.
Erlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira