Ósamstiga í mikilvægum málum 10. nóvember 2006 00:45 Spennandi verður að sjá hvernig raðast niður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í prófkjörinu sem fram fer um helgina. MYND/hari
Svör frambjóðenda í fjögur efstu sætin í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík draga fram mynd af skýrum ágreiningi milli frambjóðenda. Margir frambjóðendur sem náð hafa nokkrum pólitískum frama takast á um efstu sætin á listanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður eru ósammála um það hvort rétt hafi verið að ráðast í gerð Kárahnjúkavirkjunar. Einhverjum kann að finnast það einkennilegt að formaður og varaformaður stjórnmálaflokks séu ósamstiga í svo stóru og viðamiklu pólitísku máli eins og gerð Kárahnjúkavirkjunar, en óeining um þetta mál innan Samfylkingarinnar hefur áður verið opinberuð og sést skýrlega á svörum frambjóðenda. Enn og aftur segja frambjóðendur stjórnvöld ekki gera nóg til þess að sporna gegn fíkniefnavandanum. Jóhanna Sigurðardóttir þingkona segir meðal annars að nauðsynlegt sé „að stórauka fjárframlög til forvarna." Þrátt fyrir ófá fögur fyrirheit stjórnmálamanna um úrbætur og frekari aðgerðir gegn þeirri samfélagslegu vá sem neysla fíkniefna og áfengis er, virðist sem stjórnvöld séu vanmáttug gegn fíkniefnavandanum. Það sjónarmið ætti að geta verið nægilegur hvati fyrir frambjóðendur til þess að beita sér fyrir frekari úrbótum í þessum mikilvæga málaflokki, og það er gleðiefni að almennur vilji sé fyrir því hjá frambjóðendum í prófkjörum stjórnmálaflokkanna að efla starf gegn fíkniefnavandanum, eins og fram hefur komið í svörum þeirra við spurningum í Fréttablaðinu að undanförnu. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu hafa formenn stjórnmálaflokkanna fallist á að bókhald allra stjórnmálaflokkanna verði opnað, á grundvelli tiltekinna skilyrða sem ekki hafa verið opinberuð. Frambjóðendur eru á einu máli um að það sé skynsamlegt en eru ósammála um hvort banna eigi fyrirtækjum að styrkja við stjórnmálastarfsemi með fjárframlagi. Það mál virðist krefjast frekari umræðu innan flokksins.Innflytjendamál, einkavæðing og RÚVFrambjóðendur eru allir sammála um að stjórnvöld hafi ekki staðið sig nægilega vel í málefnum innflytjenda. Sú afstaða kemur ekki á óvart. En svörin gefa vísbendingu um að frambjóðendur verði að móta sér skýra stefnu í þessu vandmeðfarna máli. Því vilji er ekki allt sem þarf þegar kemur að efnislegum lausnum á flóknum pólitískum vandamálum. Þar skiptir ábyrgð og framsýni ekki síður máli.Einkavæðingarhugmyndum, hvort sem er í heilbrigðiskerfinu eða í orkumálum, er alfarið hafnað. Landsvirkjun skal ekki einkavæða, segja frambjóðendurnir. Lesendur geta út frá þeirri forsendu ályktað, að Samfylkingin telji ásættanlegt að ríkið stýri því hvaða auðlindir eigi að nýta, en jafnframt að ríkið eigi að vera við stjórnvölinn í fyrirtækinu sem sækist eftir því að nýta auðlindirnar. Þetta er umdeilt sjónarmið, sérstaklega út frá hugmyndum um náttúruvernd. Ingibjörg Sólrún segir að „virkjanir tengdar stóriðju eigi að reisa og reka á viðskiptalegum forsendum," sem gefur til kynna að hún vilji breyta regluverki og lögum frá því sem nú er.Ágúst Ólafur er eini frambjóðandinn sem fellst á að Ríkisútvarpinu verði breytt í opinbert hlutafélag, líkt og frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra gerir ráð fyrir. Hann segist ekki geta fallist á breytinguna nema á grundvelli þess að ritstjórnarlegt sjálfstæði RÚV haldist óskert og að allir kjörnir fulltrúar hafi óheftan aðgang að upplýsingum.
Innlent Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira