Alfesca ofar vonum 17. nóvember 2006 06:00
Afkoma Alfesca á fyrsta fjórðungi reikningsárs síns var neikvæð um 1,8 milljónir evra, sem svarar til 161,6 milljóna íslenskra króna. Er það nokkuð betri afkoma en meðaltalsspá greiningardeilda bankanna sem hljóðaði upp á um 215 milljóna króna tap. Í tilkynningu frá Alfesca kemur fram að sala á öllum meginmarkaðssvæðum, í Frakklandi, í Bretlandi og á Spáni, sem og í öllum afurðaflokkum, hafi verið góð á fjórðungnum. Nam hún um 112 milljónum evra, sem nemur rúmum 10 milljörðum króna. Söluaukningin nemur því 6,7 prósentum. Á kynningarfundi uppgjörsins í gær benti Xavier Govare, forstjóri Alfesca, á að sé litið til þriggja af fjórum megin afurðaflokkum Alfesca nemur aukningin 17 prósentum milli ára. Rekstur Alfesca hefur litast mjög af háu afurðaverði á laxi, sem náði sögulegu hámarki á fjórðungnum. Það hefur lækkað og virðist vera að ná jafnvægi og er það fyrirtækinu, sem nú er að ganga inn í mikilvægasta fjórðung ársins, afar mikilvægt.
Viðskipti Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira