Usen kaupir í Livedoor 16. mars 2006 10:32 Yasuhide Uno, til vinstri, ásamt Kozo Hiramatsu, forstjóra Livedoor, á blaðamannafundi í Tókýó í Japan í dag þegar greint var frá sölunni.
Yasuhide Uno, forstjóri japanska kapalfyrirtækisins, Usen Corp. ákvað í dag að kaupa sjálfur allan hlut Fuji Television Network í japanska netfyrirtækinu Livedoor fyrir 9,5 miljarða jena, jafnvirði 5,7 milljarða íslenskra króna. Fuji Televison Network átti 12,7 prósent í Livedoor. Með kaupunum fær Usen Corp. viðskiptasambönd Livedoor og netþjónustuveitur fyrirtækisins. Uno ætlar að skipa nefnd í lok mánaðarins sem mun útlista nánar hvernig samstarfi fyrirtækjanna verður háttað.Vonast er til að hagur Livedoor batni við kaup Unos en gengi bréfa í fyrirtækinu hefur lækkað um 90 prósent í kauphöllinni í Tókýó í Japan og verður það afskráð úr kauphöllinni um miðjan næsta mánuð. Stærsti hluthafinn í Livedoor er Takafumi Horie, fyrrum forstjóri Livedoor, sem situr í fangelsi ásamt fjórum öðrum forsvarsmönnum fyrirtækisins fyrir að falsa afkomutölur fyrirtækisins árið 2004.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira