Stenhammar hættir hjá OMX 14. desember 2006 07:00 Olof Stenhammar OMX var stofnað árið 1984 af Olof Stenhammar sem fæddur er árið 1941. Hann hverfur í vor til annarra starfa. MYND/OMX
Olof Stenhammar, stofnandi og stjórnarformaður OMX kauphallarsamstæðunnar, gefur ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn félagsins á aðalfundi þess á næsta ári. Eftir að hafa stofnað OMX árið 1984 var Stenhammar forstjóri félagsins allt fram til ársins 1996. Þá gerðist hann stjórnarformaður félagsins og hefur starfað sem slíkur síðan. „OMX hefur verið í fararbroddi í þeim umbreytingum sem kauphallir heimsins hafa gengið í gegnum síðustu áratugina, hvort heldur sem varðar skipulag, eða notkun nýjustu tækni í greiðslumiðlun. Reynslan af því að taka frumkvæði og vera með í þessu ferðalagi hefur verið stórkostleg,“ segir Olof Stenhammar í tilkynningu þar sem hann greinir frá ákvörðun sinni. Hann segir að þótt OMX sé á margan hátt orðið stór hluti af honum sjálfum þurfi leiðir að skilja. „Í dag er OMX alþjóðlegt fyrirtæki með óhemjubjartar framtíðarhorfur og mjög hæfa stjórn og stjórnendur. Núna virðist því rétta stundin til að taka þetta skref,“ segir hann og segist hlakka til að takast á við önnur spennandi verkefni. „Svo gæti jafnvel farið svo að maður tæki sér penna í hönd og kæmi einhverju á blað. Margt hefur gerst öll þessi ár og mögulegt að sagan kynni að vekja forvitni,“ segir Olof Stenhammar. Aðalfundur OMX verður haldinn 12. apríl næstkomandi. Félagið rekur kauphallir á Norðurlöndum og í Eystrasaltinu, Helsinki, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Reykjavík, Tallinn, Riga og Vilniusi. Frekari upplýsingar um samstæðuna er að finna á slóðinni www.omxgroup.com.
Mest lesið Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira