Fáir syrgja einræðisherra 13. desember 2006 06:00
Fjölmiðlar víða um heim hafa skrifað eftirmæli um Augusto Pinochet, fyrrum einræðisherra í Chile, sem lést á herspítala í Santiago á sunnudag. Breska vikuritið Economist segir fáa syrgja einræðisherrann sem steypti lýðræðislega kjörinni vinstristjórn Salvadore Allende af stóli árið 1973 og réð svo með harðri hendi næstu 17 árin. Pinochet var 91 árs þegar hann lést og hefur Economist eftir aldraðri konu í Chile að löngu hafi verið kominn tími á að almættið kallaði einræðisherrann fyrrverandi til sín. Rödd konunnar virðist einkennandi fyrir þá sem muna eftir blóðugri valdatíð Pinochets, sem sagður er bera ábyrgð á dauða þúsunda andstæðinga sinna og hafa látið pynta tugi þúsunda. Þá er Pinochet gefið að sök að hafa stungið undan 27 milljónum bandaríkjadala eða tæplega 1,9 milljörðum íslenskra króna, á bankareikninga í eigin nafni í erlendum bönkum. Pinochet var handtekinn í Lundúnum í Bretlandi árið 1998 og reynt að færa hann í hendur réttvísinnar. Það tókst ekki og vísað til þess að Pinochet væri of hrumur, elliær og of veikburða til að svara fyrir sakir sínar. Töldu því margir að hjartaáfallið, sem hann fékk fyrir rúmri viku, væri enn ein brellan til að komast hjá því. Svo reyndist ekki vera. Súrir yfir vægum dómiOg enn um fjármálasvik og dómstóla því mörgum þykir súrt hversu vægan dóm Andy Fastow, fyrrum fjármálastjóri bandaríska orku-risans Enron, fékk fyrir aðild sína að stórfelldum fjársvikum og bókhaldsbrotum til að láta sem Enron skilaði hagnaði þegar raunveruleikinn var annar.Bandaríska tímaritið Fortune segir Fastow hafa átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisdóm en hann mun hafa gert samkomulag við dómstóla um samvinnu og náði dóminum með því móti niður í sex ár. Að sögn Fortune mun samkomulagið hafa falist í því að Fastow nafngreindi þá aðila hjá ýmsum bönkum og fjármálastofnunum, sem áttu hlutdeild í því að hjálpa Enron við að lifa í lygi og fela jafnvirði 2.900 milljarða króna skuldahala fyrir hluthöfum.Fortune segir sömuleiðis að Fastow geti stytt dóminn enn frekar, eða niður í fimm ár. Það er einungis hægt fari hann í afvötnun en Fastow er sagður háður róandi lyfjum. Lái honum hver sem vill en Enron-málið mun hafa reynt á flesta sakborninga. Er skemmst að minnast örlaga Kenneths Lay, fyrrverandi forstjóra Enron, sem átti yfir höfði sér áratuga fangelsi. Hann lést af völdum hjartaáfalls í sumarhúsi sínu í júlí.
Mest lesið Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira