Leikjavísir

Stafræn upprisa Tony Montana

Tony Montana Er sjálfum sér líkur og minnir óneitanlega á Al Pacino í nýja Scarface-tölvuleiknum sem tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í glæpamynd Brians De Palma frá árinu 1983.
Tony Montana Er sjálfum sér líkur og minnir óneitanlega á Al Pacino í nýja Scarface-tölvuleiknum sem tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í glæpamynd Brians De Palma frá árinu 1983.

Al Pacino fór hamförum árið 1983 í hlutverki kúbanska glæpakóngsins Tony Montana í hinni ofbeldisfullu Scarface eftir Brian De Palma. Í lok myndarinnar féll Tony í trylltum skotbardaga við eiturlyfjagengi frá Kolombíu en nú rís hann upp í nýjum tölvuleik sem er beintegndur myndinni.

Leikurinn, Scarface : The World is Yours, sver sig í ætt við myndina og býður spilurum upp á ofbeldisfulla skotveislu í hágæðagrafík. Leikurinn hefst á lokabardaga bíómyndarinnar en núkemst Tony lífs af og leikmenn bregða sér í gervi hans og fá það verkefni að endurreisa glæpaveldi kappans og ná fram hefndum á andskotum hans sem stóðu að baki árásinni.

Leikurinn er gerður fyrir PC, PlayStation 2 og Xbox og ekki ómerkari leikarar en Michael York, Cheech Marin, Robert Davi, Michael Rappaport og Robert Loggia ljá persónum raddir sínar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×