Sjúklingar sendir á milli landshluta 5. september 2006 06:00 SJÚKRAHÚSIÐ Á EGILSSTÖÐUM Þar hefur gengið erfiðlega að fá fólk til starfa
Tvo til fimm starfsmenn vantar til starfa á hvert sjúkrahús á Austurlandi. Vegna mönnunarvanda við sjúkrahúsin í fjórðungnum hefur þurft að senda sjúklinga á milli byggðarlaga. Stefán Þórarinsson, lækningaforstjóri á Heilbrigðisstofnun Austurlands, segir sérstaklega erfitt að fá faglært starfsfólk eins og lækna til starfa. Þenslan á svæðinu hefur einnig gert það að verkum að erfiðlega hefur gengið að manna stöður ófaglærðs starfsfólks. Sjúkrahúsin í fjórðungnum eru þrjú; á Egilsstöðum, Seyðisfirði og fjórðungsjúkrahúsið í Neskaupstað en það er einnig eina sjúkrahúsið í fjórðungnum sem sinnir fæðingarhjálp. Stefán segir skort á ljósmæðrum koma í veg fyrir að hægt sé að sinna þeirri þjónustu við sjúkrahúsið á Egilsstöðum en fæðingarþjónusta var aflögð þar fyrir tveimur árum síðan. Gamalt fólk getur lent í því að vistast fjærri heimabyggð vegna mönnunarvandans en það er misjafnt hvar hann er mestur. Þrátt fyrir þetta óhagræði hefur fólk tekið þessu með jafnaðargeði. Stefán segir heilbrigðisstofnanir á Austurlandi hafa auglýst eftir starfsfólki án árangurs. Í uppganginum sem hér er núna sækir fólk í betur launuð störf og heilbrigðistofnanirnar eru ekki samkeppnisfærar um vinnuafl.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira