Stefna olíufélaga þingfest 13. september 2005 00:01
Stefna olíufélaganna Skeljungs og Olíuverslunar Íslands á hendur samkeppnisyfirvöldum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í morgun. Stefna Olíufélags Íslands hefur þegar verið þingfest. Olíufélögin krefjast þess öll að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnisyfirvalda um samráð olíufélaganna verði gerður ógildur. Yrði það niðurstaða héraðsdóms myndu sektir olíufélaganna upp á einn og hálfan milljarð króna falla niður. Sektir á hendur Olís hljóða upp á 560 milljónir króna, Skeljungur er sektaður um 450 milljónir og Essó um 495 milljónir króna. Til vara krefjast olíufélögin þess að sektirnar verði lækkaðar verulega. Stefna Esso var þingfest rétt fyrir þinghlé í lok júní og má búast við því það mál verði sameinað málinu sem þingfest er í dag. Frá þingfestingu fá samkeppnisyfirvöld átta vikur til að skila greinagerð um málið. Að því loknu verður skipaður dómari í málinu. Málflutningur olíufélaganna snýst um það að málsmeðferð samkeppnisyfirvalda hafi verið gölluð. Eins segja olíufélögin engan ávinning hafa orðið af meintu samráði. Til að styðja það ætla félögin að óska eftir að matsmenn verði dómkvaddir. Allt tekur þetta sinn tíma og er því búist við að aðalmeðferð í málinu verði í fyrsta lagi á vordögum.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira