Lífrænar vörur breiða úr sér 11. apríl 2005 00:01
Lífrænt ræktuð fæða var á árum áður aðeins fáanleg í sérverslunum en á skömmum tíma hefur orðið mikil breyting þar á og í dag eru þær auðfáanlegar í flestum stórverslunum. Nokkrar verslanir hafa stillt lífrænt ræktuðu fæðunni sérstaklega fram eða hafa hann á sérmerktu svæði í verslunum sínum. Fjarðarkaup, Hagkaup og Nóatún eru allt verslanir sem selja lífrænt ræktaða fæðu og í hverri þeirra er rekin sérstök stefna í þessum málum. "Fyrir einu og hálfi ári opnuðum við sérverslunina Fræið innan Fjarðarkaupa þar sem lífrænt ræktuð fæða og heilsuvörur eru seldar, " segir Sveinn Sigurbergsson, verslunarstjóri í Fjarðarkaupum. Hann segir eftirspurn eftir þessum vörum hafa aukist mikið og séu þeir fyrst og fremst að svara kalli viðskiptavinarins. "Við leggjum einnig ríka áherslu á að bjóða upp á fæðu fyrir fólk með ýmis fæðuofnæmi eins og glútenfrían mat og fleira," segir Sveinn. Í Hagkaupum er einnig að finna afmarkað svæði með lífrænum vörum. "Við erum komin með á þriðja þúsund vörunúmer í lífrænum vörum og það er alltaf að aukast," segir Sigurður Reynaldsson, innkaupastjóri matvöru hjá Hagkaupum. "Þessi vöruflokkur hjá okkur hefur vaxið um 1000% frá árinu 2001 sem sýnir að þetta er það sem viðskiptavinurinn vill," segir Sigurður. Í Nóatúni kveður við sama tón en þar hefur sala og eftirspurn á lífrænt ræktaðri fæðu verið að aukast. "Við erum farin að afmarka lífrænt ræktaða fæðu í verslunum okkar og mun fjölbreytni aukast í samræmi við eftirspurn," segir Eysteinn Helgason, framkvæmdastjói innkaupa í Nóatúni. "Við höfum fengið vörur frá okkar birgjum en erum einnig farnir að flytja inn vörur sjálfir eins og lífrænt ræktaðan ávaxtasafa," segir Eysteinn.
Matur Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið