Leikjavísir

Útgáfudagar Xbox 360 staðfestir

Eins og áður hefur komið fram í fréttum hér á GEIM mun Xbox 360 koma samtímis á markað á helstu markaðssvæðum og er það í fyrsta skipti sem leikjavél er gefin út í sama tímaramma. Microsoft menn hafa nú tilkynnt um útgáfudagana fyrir markaðssvæðin og eru þær svo hljóðandi: Bandaríkin:  22. nóvember Evrópa:  02. desember Japan:  10. desember  Vélin er sú fyrsta á markað af næstu kynslóð leikjatölva og munu Microsoft menn hafa talsvert forskot á Playstation 3 vél Sony og Revolution frá Nintendo. Um það bil 20 leikir verða tilbúnir á útgáfudegi. Spennandi verður að fylgjast með þróun mála og um mun GEIM vera með öll nýjustu tíðindin þegar þau berast.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×