Rockstar eru sekir 13. október 2005 19:33
Hot Coffee hneykslið hefur náð suðupunkti nú þegar allur vafi hefur verið fjarlægður varðandi það hver ber ábyrgð á kynlífsleikjunum sem uppgötvuðust í GTA: San Andreas. Þetta mál hefur vakið gífurlegt umtal í Bandaríkjunum, enda hafa GTA leikirnir alltaf valdið miklum deilum. Eins og Geim hefur áður sagt frá, þá uppgötvaðist það fyrir stuttu að í PC útgáfu leikjarins væri hægt að nota svindl sem aflæsir nokkra mini-leiki sem gera CJ kleyft að stunda kröftugt kynlíf með sínum allmörgu kærustum. Í fyrstu neituðu framleiðendur GTA, Rockstar Games, allri aðild. Þeir gáfu þá afsökun að einhverjir hakkarar hafi búið Hot Coffee kóðann til, og að það hafi enginn hjá fyrirtækinu komið nálægt þessu máli. ESRB (Entertainment Software Ratings Board) hóf strax rannsókn á málinu og eftir 2 vikna rannsókn náðu þeir að losa um sömu kynlífsleiki í PS2 útgáfu leiksins. Þar sem PS2 leikir eru skrifaðir á diska sem ómögulegt er að brenna yfir þýðir það að þetta hafi verið falið í leiknum frá upphafi. Þetta hefur þær afleiðingar að leikurinn er ekki lengur bannaður innan 17 í USA, heldur hefur hann núna merkinguna "Aðeins fyrir fullorðna." Þótt að þetta breyti litlu fyrir aðdáendur leikjanna, þá eru margar verslanir í Ameríku sem neita að selja leiki með þessa einkunn. Þessvegna hefur leikurinn núna verið fjarlægður úr öllum hillum í Wal-Mart, Target og Best Buy, og margar aðrar keðjur hafa tilkynnt að þær muni gera það sama. Þegar þetta er skrifað hafa Rockstar Games ekki gefið út tilkynningu um þetta mál, en enginn veit hvernig þeir munu bregðast við því núna eru þingmenn á borð við Hillary Clinton, Bill Clinton og Jack Thompson bálreið út í þá, og krefjast sterkra afleiðinga. Geim mun fylgjast vel með gangi mála.
Árni Pétur Leikjavélar Mest lesið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Alma stolt af syninum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Lífið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Fleiri fréttir Láta reyna á heilasellurnar og samvinnuna Leikirnir sem beðið er eftir Sjá meira