Frummenn slappir í bissness 7. apríl 2005 00:01
Lengi hefur verið deilt um það hvernig staðið hafi á því að Neanderthalsmaðurinn dó út fyrir um þrátíu þúsund árum. Nú hefur sú kenning komið fram að ástæða hafi verið sú að Neanderthalsmenn hafi verið lélegir kaupmenn. Neanderthalsmenn voru miklu fyrri til að setjast að í Evrópu heldur en nútímamaðurinn og hafa mannfræðingar lengi velt vöngum fyrir því af hverju stofn þeirra dó út smám saman. Talið er að nútímamenn og Neanderthalsmenn hafi um langa hríð átt vinsamleg samskipti og jafnvel er talið að einstaklingar af sitt hvorri tegundinni hafi átt afkvæmi saman. Neanderthalsmenn eru taldir hafa lifað góðu lífi í um 260 þúsund ár áður en þeir skyndilega dóu út. Mannfræingar eru engan veginn sammála um hvað olli en ný kenning lítur til hagfræðinnar til að skýra ráðgátuna. Í tímaritinu New Scientist segir frá rannsókn hagfræðingsins Jason Shogren sem útbúið hefur tölvulíkön þar sem reynt er að endurhanna atburðarrásina sem varð til þess að Neanderthalsmenn dóu út í Evrópu. Niðurstaða hagfræðingsins er sú að líkleg skýring sé sú að nútímamaðurinn hafi haft miklu meiri getu til að stunda verslun og sérhæfa sig. Vísbendingar eru uppi um að nútímamenn fyrir fjörtíu þúsund árum hafi skipst á dýrmætum vörum og komið sér upp dreifileiðum sem náðu yfir stór landflæmi í Evrópu.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira