Leikjavísir

Halo 2 aukapakki á leiðinni

Miklar vangaveltur hafa verið undanfarið um aukapakka fyrir hinn vinsæla Halo 2 fyrir Xbox leikjavélina eftir að upplýsingar birtust fyrst á heimasíðu Microsoft í Kóreu og svo á Ebgames.com sem birti upplýsingar og verð á pakkanum en tók svo upplýsingarnar af síðunni. Microsoft menn hafa nú staðfest tilurð pakkans sem kærkomin viðbót við þennan frábæra leik sem þó þótti á mörgum vígvöllum of stuttur. Pakkinn verður fáanlegur bæði í gegnum Xbox Live þjónustuna og einnig hjá endursöluaðilum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×