INXS tekur þátt í Rock Star 15. júní 2004 00:01
Ástralska rokksveitin INXS, sem missti söngvara sinn, Michael Hutcence eftir sjálfvíg hans árið 1997, ætlar að taka þátt í raunveruleikaþættinum Rock Star. Sveitin er m.a. þekkt fyrir lögin Need You Tonight og Devil Inside. Í þættinum, sem er gerður af Mark Burnett, höfundi Survivor og The Apprentice, keppir fólk um tækifæri til að láta draum sinn rætast og gerast rokkstjarna. Sigurvegarinn mun syngja inn á fyrstu plötu INXS í sjö ár, eða síðan hún gaf út Elegantly Wasted 1997, og fara með henni í tónleikaferð um heiminn. "Ég hef verið aðdáandi INXS í langan tíma og það er frábært að hljómsveitin hafi komið til okkar með þessa hugmynd og treyst okkur fyrir framtíð sinni," sagði Burnett. "Að mínu mati er pláss í sjónvarpinu fyrir meira en einn hæfileikaþátt í tónlist og rokkið hefur algjörlega orðið útundan til þessa." Síðan Hutchence lét lífið hefur eftirlifandi meðlimum INXS gengið erfiðlega að finna staðgengil hans. Samlandi þeirra, Jon Stevens, hefur mest sungið með þeim en sveitin vill annan söngvara. "Síðan Michael dó vildum við leita út um allan heim að nýjum söngvara en vissum ekki hvernig við ættum að gera það," sagði Tim Farris, meðlimur sveitarinnar. "Með því að fá Mark og félaga til að taka verkefnið að sér höfum við fundið frábæra leið til að láta það gerast." Áhorfendur þáttarins geta ekki valið upp á sitt einsdæmi rokkstjörnuna sem vinnur, ólíkt því sem verið hefur í þáttum á borð við Idol. Hljómsveitarmeðlimirnir og sérfræðingar úr tónlistarbransanum munu einnig hafa sitt að segja.
Menning Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira