Jól

Efni í handgerð og kort og heimage

"Kortagerð er eitt alvinsælasta föndrið fyrir jólin hjá okkur því þeir eru alltaf fleiri og fleiri sem gera jólakortin sín sjálfir," segir Björg Benediktsdóttir, kaupmaður í versluninni Föndru við Dalveg, spurð um heitustu vörurnar hjá handverksfólki nú um stundir. Þegar betur er að gáð var spurningin óþörf því við kortarekkann er fjöldi barna og fullorðinna að bjástra. Sumir eru að skera út mynstur með skapalónum, aðrir nota límmiða og enn aðrir eru að velja sér þrívíddarmynstur til að fara með heim. Það nýjasta í þessari deild segir Björg vera snjókort sem þó hafa yfir sér gamaldags svip og þegar þau eru hrist fjúka snjókorn um myndina sem er á kortinu. Þæfing ullar er annað algengt viðfangsefni kvenna í dag og að sögn Bjargar rýkur forþæfða merinóullin út enda er hún til í mörgum fallegum litum. "Úr þessu verða hanskar, lúffur, sjöl, töskur og heilu kápurnar," segir Björg og getur þess líka að vinsælt sé að þæfa ullina á silki. Margt fallegt verður líka til úr filti og nú er komið nýtt filt með glimmeri sem slær að sjálfsögðu í gegn nú þegar glitið er í hávegum haft.
Kortaefnið er af ýmsu tagi.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×