Jól

Leggja saman kraftana í kortin

Hjónin Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Edda Guðmundsdóttir senda heimagerð jólakort í ár eins og oft áður. Kortin prýðir mynd af málverki eftir Eddu sem er frístundamálari en Steingrímur vinnur kortin í tölvunni og prentar þau út á góðan pappír. "Konan er búin að mála í mörg ár en ég byrjaði nú ekki að búa til þessi kort fyrr en fyrir svona sex árum. Ég hef yfirleitt tekið myndir af málverkunum hennar og svo valið eitthvað úr þeim. En einu sinni notuðum við reyndar mynd sem var tekin af okkur feðgum þremur saman á toppi Hvannadalshnjúks," segir Steingrímur. Hversu mörg kort skyldi hann svo búa til þetta árið? "Við sendum svona 100 og ég er búinn með 26. Þá kláraðist liturinn í prentaranum og ég á eftir að ná mér í nýjan."
Edda með kortið í ár og fyrirmyndina.
Sýnishorn af kortum fyrri ára.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×