Jól

Úrvalið breytilegt dag frá degi

"Allir hlutirnir eru framleiddir á Sólheimum en þar eru sex vinnustofur. Þetta eru mikið til einstakir hlutir og má segja að úrvalið í versluninni sé breytilegt frá degi til dags," segir Sveinbjörn Pétursson hjá jólamarkaðinum. "Þessi markaður hefur verið í mörg, mörg ár á mismunandi stöðum í gegnum tíðina. Nú erum við í kjallaranum á Iðu og vil ég koma sérstökum þökkum til Arndísar Bjargar Sigurgeirsdóttur fyrir að bjóða okkur að vera hér. Og auðvitað eigum við fastakúnna sem hafa heimsótt markaðinn á hverju ári og eru farnir að kíkja núna eftir jólagjöfum," segir Sveinbjörn og hvetur fólk til að koma snemma í jólagjafainnkaup. "Í síðustu vikunni fyrir jól er alltaf löng biðröð og engum finnst gaman að bíða í biðröð." Jólamarkaðurinn er opinn alla daga til jóla til klukkan 22 á kvöldin. Á Sólheimum er kertagerð, smíðastofa, leirgerð, listasmiðja, jurtastofa, vefstofa og garðyrkjustöðin Sunna og má kaupa allar vörur á markaðinum sem þar eru framleiddar. "Svo er þetta líka ódýrt. Við erum með margt undir fimm hundruð eða þúsund krónum," segir Sigurbjörn og bætir við að hér sé um gott málefni að ræða þar sem allur ágóði rennur til starfsins á Sólheimum. Lykilatriði á Sólheimum er endurvinnsla en allt sem hendi er næst er endurnýtt ef það nýtist ekki í daglegu amstri. Til dæmis er að finna óróa úr hjólaumgjörð, arinkubba úr dagblöðum og lampa úr hrútshorni. Því miður er lífrænt ræktaða grænmetið búið en seldar eru niðursuðuvörur og hamingjuegg úr frjálsum hænum á Sólheimum.
Skemmtilegar skálar úr pappamassa - litríkar og fínar. Litlar á 300 krónur, miðstærðin á 600 krónur og bátalaga á 1.200 krónur.
Sniðugar jólagjafir í smápakka. Fjallagrasasápa á 490 krónur.
Öðruvísi og sérstök jólakort á 250 krónur stykkið.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×