Jól

Töskur og óvenjulegar klukkur

Margrét Sveinbergsdóttir, verslunarstjóri í safnverslun Listasafns Íslands, hefur langa reynslu af rekstri slíkrar verslunar, en hún var um árabil verslunarstjóri á safni í Kanada. Margrét segir aðaláhersluna hjá sér vera kort og plaköt sem hafa verið gefin út af safninu sjálfu, svo og bækur og listmuni eftir innlenda og erlenda listamenn. "Hér er mikið úrval af kortum og plakötum, en við bjóðum líka upp á skemmtilegar vörur frá Metropolitan Museum og Museum of Modern Art í New York. Þar má nefna slæður og sjöl, mjög svo óvenjulegar skálar og klukkur, töskur og bindi með mynstrum eftir William Morris, sem meðal annars er frægur fyrir mynstrin sín í veggfóðrum, og svo auðvitað fjölbreytta íslenska hönnun og skartgripi. Ég er með verk 30 íslenskra listamanna og hef notið þess eftir að ég kom heim að vinna með öllu þessu skemmtilega og hæfileikaríka fólki." Sjón er sögu ríkari í safnversluninni, til dæmis eru þar til sölu skemmtilegir litlir skór frá Metropolitan, en saga þeirra fylgir með í pakkningunni. "Þar er oft um að ræða skó sem hafa verið sérsmíðaðir á einhverjar dívurnar," segir Margrét hlæjandi. Verðinu í versluninni er mjög stillt í hóf, plakötin kosta til dæmis á bilinu 1.000 til 1.500 krónur og sóma sér allstaðar vel á vegg.
Skálin er frá Museum of Modern Art í New York og hægt er að leggja hana alveg saman. Töskurnar og sjölin eru með mynstrum eftir hinn fræga hönnuð William Morrison
Skórnir eru frá Metropolitan og saga þeirra fylgir með í kaupunum.
Þessir skemmtilegu púðar eru til sölu í Listasafninu.
Næla úr hrosshári.
Jólasveinn úr íslenskri ull.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×