Furstadæmin yfirgefa OPEC Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds. Viðskipti erlent 28.4.2026 13:24
Tim Cook stígur til hliðar Tim Cook, forstjóri tæknirisans Apple, mun stíga til hliðar úr starfi sínu seinna á þessu ári og þess í stað verða stjórnarformaður. Cook hefur stjórnað Apple frá því hann tók við starfinu af Steve Jobs, skömmu fyrir andlát hans, árið 2011. Viðskipti erlent 20.4.2026 21:16
Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Franskur dómstóll dæmdi sementsframleiðandann Lafarge til þess að greiða sekt og stjórnendur þess í fangelsi fyrir að fjármagna hryðjuverkasamtök í Sýrlandi. Fyrirtækið greiddi samtökunum svokallað verndargjald til þess að halda starfsemi sinni í landinu stríðshrjáða gangandi. Viðskipti erlent 13.4.2026 15:47
Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Viðskipti erlent 30.3.2026 08:29
OpenAI kippir Sora úr sambandi Sam Altman, forstjóri OpenAI, tilkynnti starfsmönnum í dag að fyrirtækið væri að hætta með Sora-myndbandaþjónustuna. Það er þjónusta sem hefur gert notendum kleift að búa til nokkuð raunveruleg en stutt myndbönd með aðstoð gervigreindar. Ákvörðunin er liður í nokkuð umfangsmiklum breytingum á rekstri gervigreindarfyrirtækisins. Viðskipti erlent 24.3.2026 22:59
Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Áhrif orkukreppunnar vegna árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran nú eru meiri en tveggja olíukreppa á 8. áratugnum og innrásarinnar í Úkraínu samanlagt. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur þjóðarleiðtoga hafa ekki gert sér greint fyrir alvarleikanum. Viðskipti erlent 23.3.2026 09:15
Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Tillaga að breytingum á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) verður lögð fram á næstu dögum, að sögn forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Breytingunum er ætlað að bregðast við háu raforkuverði í Evrópu. Viðskipti erlent 20.3.2026 10:12
Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. Viðskipti erlent 19.3.2026 09:48
Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Forsvarsmenn fyrirtækisins Nvidia kynntu í gær nýjung hvað varðar grafík fyrir tölvuleiki. Hún kallast DLSS 5 og er ætlað að bæta lýsingu í tölvuleikjum og gera grafík þeirra raunverulegri. Hún þykir þó strax töluvert umdeild. Viðskipti erlent 17.3.2026 14:47
Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Olíuverð hefur lækkað á mörkuðum í dag og verðbréfavísitölur vestanhafs hafa hækkað. Dagurinn á Wall Street ku vera sá besti frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran. Viðskipti erlent 16.3.2026 17:48
Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Sænsku fyrirtækin Ikea og Volvo er á meðal rúmlega hundrað fyrirtækja og fjárfesta sem skora á Evrópusambandið að veikja ekki viðskiptakerfi þess með losunarheimildir (ETS). Stóriðjufyrirtæki í Evrópu halda nú uppi harðri gagnrýni á kerfið í aðdraganda endurskoðunar á því. Viðskipti erlent 13.3.2026 10:46
Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur. Viðskipti erlent 11.3.2026 10:32
Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð. Viðskipti erlent 8.3.2026 16:39
Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Stjórnendur bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods Ltd. hafa ákveðið að falla frá tilraunum sínum til að tryggja sér vörumerkið „Iceland“, eftir að hafa tapað í baráttunni við íslenska ríkið í þriðja sinn í fyrra. Viðskipti erlent 4.3.2026 13:34
Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti á hlutabréfamarkaðnum í Suður-Kóreu voru stöðvuð í 20 mínútur í morgun, þegar hlutabréfaverð féll um meira en átta prósent. Viðskipti erlent 4.3.2026 07:20
Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Bandarískur tæknivefmiðill rak reyndan blaðamann eftir að miðillinn birti grein með tilvitnunum í raunverulega manneskju sem gervigreind skáldaði upp. Blaðamaðurinn bar því við að hann hefði verið veikur og vansvefta þegar hann gerði „alvarleg mistök“. Viðskipti erlent 3.3.2026 13:01
Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í morgun vegna átaka tengdra Íran og röskunar á olíuflutningi frá Persaflóasvæðinu. Viðskipti erlent 3.3.2026 11:33
Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins. Viðskipti erlent 1.3.2026 15:29
Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt. Viðskipti erlent 27.2.2026 00:06
Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Børge Brende sagði af sér sem forseti Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í dag vegna sambands hans við Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninn. Brende þrætti upphaflega fyrir að hafa átt í samskiptum við Epstein en annað kom í ljós þegar bandarísk skjöl voru birt nýlega. Viðskipti erlent 26.2.2026 14:45
Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Fyrirtæki í Rússlandi hafa notað bresk aflandssvæði til þess að komast í kringum þvingunaraðgerðir. Alþjóðleg samtök gegn spillingu telja að viðskipti fyrir allt að átta milljarða dollara hafi farið þessa leið frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu. Viðskipti erlent 25.2.2026 10:34
Trump hækkar tolla á öll lönd Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hækkað tolla á öll lönd í heiminum úr tíu prósentum í fimmtán. Hann greinir frá á Truth Social. Viðskipti erlent 21.2.2026 16:11
Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem Donald Trump forseti hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir. Viðskipti erlent 20.2.2026 15:08
Einn stofnenda ASOS fannst látinn Quentin Griffiths, einn stofnandi breska netverslunarrisans ASOS, er látinn, 58 ára að aldri. Hann fannst látinn eftir að hafa fallið af svölum lúxushótels í Taílandi fyrr í mánuðinum. Viðskipti erlent 20.2.2026 13:39
Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, bar í gær vitni í fyrsta sinn í dómsmáli þar sem fjallað er um ávanabindandi samfélagsmiðla og tækni. Réttarhöldin gætu haft mikil áhrif á rekstur samfélagsmiðla á næstu árum. Viðskipti erlent 19.2.2026 13:55