Tónlist

Brjálað stuð á Basshunter á Broadway

Í vikunni var haldið ball fyrir grunn- og framhaldsskólanema á Broadway af útvarpsstöðinni Flass 104,5. Hápunktur kvöldsins var þegar plötusnúðurinn Basshunter steig á svið ásamt dönsurum. Basshunter hefur gert allt vitlaust í Evrópu með lögunum Boten Anna og Vi sitter i ventrilo och spelar Dota.

Tónlist

Stones á toppnum

Tónleikaferð rokkhundanna í The Rolling Stones, Bigger Bang, hefur verið valin tónleikaferð ársins af bandaríska tónlistartímaritinu Billboard. Byggðist valið á aðsóknartölum og því hversu mikið tónleikaferðin þénaði.

Tónlist

Uppgjörsplata Ívars

Fyrsta plata Ívars Bjarklind, Blóm eru smá, er komin út. Á persónlegan hátt gerir Ívar þar upp líf sitt með fallegum lagasmíðum og innihaldsríkum textum.

Tónlist

Útgáfutónleikar Lay Low

Nú er komið að útgáfutónleikum plötunnar "Please Don´t Hate Me" og fara þeir fram miðvikudagskveldið 29. nóvember n.k. í Fríkirkjunni í Reykjavík. Forsala hefst laugardaginn 18. nóvember kl. 12:00 í verslunum Skífunnar og á www.midi.is

Tónlist

Bó á vinsældalista í Þýskalandi

„Nei nei, og þó …jú," svarar Björgvin Halldórsson stórsöngvari spurður út í fréttir þess efnis að lagið Eina ósk í hans flutningi sé að slá í gegn í Þýskalandi um þessar mundir.

Tónlist

Queen hefur selt mest allra

Hljómsveitin Queen á mest seldu plötu allra tíma í Bretlandi, safnplötuna Greatest Hits sem kom út árið 1981. Alls hefur platan selst í rúmlega 5,4 milljónum eintaka þar í landi.

Tónlist

Justin hjálpar Duran

Söngvarinn Justin Timberlake þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af nýjustu plötu sinni „Futuresex/lovesounds" en hún selst í bílförmum þessa dagana.

Tónlist

Miðasala í Laugardalshöll í dag

Enn eru til miðar á 20 ára afmælistónleika Sykurmolanna í kvöld, föstudagskvöldið 17. nóvember, í Laugardalshöll. Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar Kringlunni og Smáralind, BT Akureyri, Selfossi og Egilstöðum og á Midi.is.

Tónlist

Jólatónleikar Fíladelfíu

Jólatónleikar Fíladelfíu verða haldnir í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, 5. og 6. desember kl. 20 og kl. 22, bæði kvöldin. Flytjendur eru Gospelkór Fíladelfíu undir stjórn Óskars Einarssonar, Björgvin Halldórsson, Hera Björk, Maríanna Másdóttir, Þóra Gréta Þórisdóttir og Edgar Smári ásamt fjölda annarra einsöngvara.

Tónlist

Í bolla hafið bjarta

Þeir sem eitt sinn voru unglingastjörnur geta átt í miklum erfiðleikum með að höndla lífið og ná jarðsambandi á ný. Breti af grískum ættum valdi sér á sjöunda áratugnum listmannasnafnið Cat Stevens og náði sem slíkur miklum vinsældum, kom fótum undir plötufyrirtækið Island, var umvafinn fögrum konum og mikilli velsæld en koksaði á öllu á frægum konsert í Aþenu og gekk af sviðinu.

Tónlist

Er gullöldin að líða undir lok?

Það hefur farið minna fyrir hiphop-tónlist á plötusölulistum í ár heldur en undanfarin ár. Nú eru hins vegar að koma út nýjar plötur með nokkrum af stærstu nöfnunum í rappinu.

Tónlist

U2 vinnur dómsmál

Írska hljómsveitin U2 hefur unnið dómsmál sem hún höfðaði gegn fyrrverandi útlitshönnuði sínum, Lolu Cashman. Var hún sökuð um að hafa tekið muni í eigu sveitarinnar án leyfis á meðan á tónleikaferð hennar stóð vegna Joshua Tree-plötunnar árið 1987.

Tónlist

Trommutaktar og lúðrar

Jónas Sigurðsson, fyrrum söngvari Sólstrandagæjanna, hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu sem nefnist Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Jónas hefur starfað síðustu ár við hugbúnaðargerð hjá Microsoft í Danmörku.

Tónlist

Megas endurútgefinn og nýr

Í dag, 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, koma þrjár af plötum Megasar út á nýjan leik. Þetta er í annað sinn sem Íslenskir tónar senda frá sér veglegar endurútgáfur á plötum Megasar en árið 2002 komu 10 fyrstu sólóplötur meistarans út ásamt miklu aukaefni við mikinn fögnuð aðdáenda.

Tónlist

Salzburgarárin hans Mozarts

Í kvöld verða tónleikar hjá Sinfóníunni sem helgaðir eru verkum Mozarts sem hann samdi í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg. Verður Hamrahlíðarkórinn í stóru hlutverki á tónleikunum. Á efnisskránni er verkið Exultate jubilate, eitt frægasta æskuverk Mozarts, auk tveggja verka sem Mozart samdi við Maríutextann Regina Coeli.

Tónlist

Eingöngu lög og textar eftir konur

Á morgun kemur út geisladiskurinn Sögur af konum þar sem Selma og Hansa syngja 12 ný lög eftir íslenskar konur. Sögur af konum inniheldur 12 ný íslensk lög og texta eftir íslenskar konur. Selmu og Hönsu langaði til að gera tónlistarkonum á Íslandi hátt undir höfði og velja eingöngu lög og texta eftir konur.

Tónlist

Roof Tops snúa aftur

Upp úr 1966 tók að heyrast hér tónlist sem stakk í stúf við gítargutlið sem drengjapoppið hafði sem megineinkenni. Fyrstu hljómarnir bárust hingað um Kanaútvarpið og takturinn var annar, söngurinn rámari og blár og saxó-fónar og önnur blásturstól áberandi.

Tónlist

Nýtt starfsár hafið hjá Sinfóníu Norðurlands

Vetur er að leggjast yfir Norðurland og þá taka hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að stilla saman strengi sína. Fjórtánda starfsár þeirra er að hefjast. Skólatónleikar skipa stóran sess í dagskrá vetrarins.

Tónlist

Kærastarnir algjörar hetjur að bíða heima

Þær Alma, Klara, Emilía og Steinunn eru ekki beint venjulegar stúlkur á þrítugsaldri. Á rúmum sex mánuðum hafa stöllurnar komið fram sjö sinnum á stærsta leikvangi Bretlands, Wembley, og fjörið er bara rétt að byrja. Nylon, litla hljómsveitin sem margir höfðu ekki trú á, virðist vera búin að sýna sig og sanna.

Tónlist

Jónas og Kristinn í Salnum

Þeir félagar Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson verða með ljóðatónleika í Salnum á laugardag kl. 16. Ljóðatónleikar þeirra hafa löngum verið hápunktur í starfi Salarins og hafa þeir verið duglegir að koma fram, eiga sér dyggan aðdáendahóp sem sækir alla þeirra tónleika enda er frammistaða þeirra rómuð á þessum heimilislegu tónleikum.

Tónlist

Hugarsmíð Simons Cowell slær í gegn

X Factor-keppnin hefst á Íslandi á morgun. Þótt keppnin eigi sér ekki langa sögu nýtur hún mikilla vinsælda um allan heim enda er bryddað upp á þeirri nýjung að dómarar eru ekki síður í keppni innbyrðis en þátttakendurnir sjálfir.

Tónlist

Halli í tónleikaferð

Trúbadorinn Halli Reynis er að senda frá sér sína sjöundu plötu sem nefnist Fjögurra manna far. Er hún gefin út á vegum Músík ehf. og er þetta í fyrsta sinn sem Halli gerir útgáfusamning á ferli sínum. Í tilefni plötunnar ætlar hann að halda einn með gítarinn í tónleikaferð sem byrjar í kvöld á Græna hattinum á Akureyri. Nánari upplýsingar um tónleikaferðina má fá á Hallireynis.com.

Tónlist

Guðrún í Fríkirkjunni

Útgáfutónleikar söngkonunnar Guðrúnar Árnýjar verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld klukkan 20.00. Þar flytur Guðrún lög af fyrstu sólóplötu sinni, Eilíft augnablik, sem kom út nú í vikunni.

Tónlist

Gerðu barnaplötu sem lokaverkefni

Félagarnir Halli og Heiðar úr rokksveitinni Botnleðju hafa gefið út barnaplötuna Pollapönk. Þetta er fyrsta barnaplatan sem þeir gera í sameiningu en áður hafði Halli gefið út plötuna Hallilúja þar sem hann naut aðstoðar ýmissa tónlistarmanna, þar á meðal Heiðars.

Tónlist

Djassað í Dómó

Múlinn er nú sestur að í glæsilegu nýju húsnæði hinna geðþekku lífskúnstnera Kormáks og Skjaldar, Domo í Þingholtsstræti. Í kvöld mæta í spilamennsku þar hressu strákarnir í Prímal Freeman til að halda uppi þéttri stemningu: Helgi Svavar Helgason, Róbert Reynisson, Davíð Þór Jónsson, Eiríkur Orri Ólafsson og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson.

Tónlist

17 smáskífulög og 23 myndbönd

Hljómsveitin Depeche Mode hefur gefið út safnplötuna The Best Of Depeche Mode: Volume 1. Platan hefur að geyma 17 smáskífulög sveitarinnar sem flest hver hafa notið mikilla vinsælda undanfarin 25 ár. .

Tónlist

Ævintýralegt ferli hjá Ragnheiði Gröndal

Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal hefur gefið út sína fjórðu sólóplötu, sem nefnist Þjóðlög. Platan hefur að geyma íslensk þjóðlög í hennar eigin útsetningum. Við þær naut hún einnig aðstoðar þeirra Hauks Gröndal og Huga Guðmundssonar.

Tónlist

Robbie á tónleikum

Breski tónlistarmaðurinn Robbie Williams hefur gefið út DVD-mynddiskinn And Through It All sem hefur að geyma tónleikaupptökur frá árunum 1997 til 2006.

Tónlist

Rass bætist í hópinn

Hljómsveitin Rass og plötusnúðurinn Dj@mundo koma fram á afmælistónleikum Sykurmolanna í Laugardalshöll á föstudaginn. Þegar hafði verið tilkynnt um upphitun Múm.

Tónlist