Fótbolti

Þýskaland Evrópumeistari U21 árs liða

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þjóðverjar fagna sigurmarki sínu í kvöld.
Þjóðverjar fagna sigurmarki sínu í kvöld. vísir/getty
Þýskaland heldur áfram að framleiða hágæða knattspyrnumenn en í kvöld tryggði framtíð þýska landsliðsins sér Evrópumeistaratitilinn hjá U21.

Þjóðverjar mættu Spánverjum í úrslitaleiknum og höfðu sigur, 1-0.

Það var Mitchell Weiser, leikmaður Herthu frá Berlín, sem skoraði eina mark leiksins fimm mínútum fyrir leikhlé. Markið skoraði hann með glæsilegum skalla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×