Bandaríkjamenn vilja reisa 120 herbergja hótel við höfnina 15. desember 2008 13:05
Bandarísk hótelkeðja hefur áhuga á því að byggja 120 herbergja hótel við Ægisgarð við hliðina á Mýrargötureitnum. ABZ-A hefur fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags sótt um lóð undir hótelið á þessum stað. ABZ stendur fyrir arkitektana Arkís, Guðjón Bjarnason og Carlos Zapata. Egill Guðmundsson arkitekt hjá Arkís segir að hótel þetta gæti orðið mikil lyftistöng fyrir hafnarsvæðið og að framkvæmdin spili vel inn í aðrar framkvæmdir á svæðinu eins og t.d. tónlistarhúsið. Þá kom fram í máli hans að undirbúningur að þessu hafi staðið undanfarna sex mánuði. Júlíus Vífill Ingvarsson formaður stjórnar Faxaflóahafna segir að það sé sérlega ánægjulegt að erlendir aðilar vilji koma hingað og fjárfesta eftir allt sem á undan er gengið í íslenku efnahagslífi. „Við fögnum þessum áhuga og munum leggja okkar af mörkum til að framkvæmd þessi verði að veruleika,„ segir Júlíus Vífill. „Mér sýnist að hugmyndirnar sem þessir menn hafa séu prýðisgóðar en þarna er meðal annars gert ráð fyrir sundlaug við hótelið." Hafnarstjórn samþykkti á fundi sínum á föstudag að óska eftir umsögn skipulagsráðs Reykjavíkur um erindið, en ljóst er að það hefur í för með sér breytingu á deiliskipulagi Mýrargötureits. Verði sú umsögn jákvæð er fallist á að ganga til viðræðna um málið enda verði þá gerð nánari grein fyrir fjármögnun, eignaraðild og framkvæmdatíma.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira