Dómsmál

Fréttamynd

Jón Trausti í 2 mánaða fangelsi

Jón Trausti Lúthersson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Hann var ákærður fyrir að hafa ráðist inn á ritstjórnarskrifstofur DV síðastliðið haust, tekið Reyni Traustason fréttastjóra hálstaki og hert að með þeim afleiðingum að honum sortnaði fyrir augum, marðist og hruflaðist á hálsi.

Innlent
Fréttamynd

Tengjast nígerískum glæpasamtökum?

Grunur leikur á að par, sem stal tveimur bílaleigubílum og flutti úr landi, sé tengt nígerískum glæpasamtökum erlendis. Réttarhöld yfir parinu stóðu yfir í allan dag.

Innlent
Fréttamynd

Grasbændur ryðja sér til rúms

Íslenskur landbúnaður hefur um nokkurt skeið verið einskonar olnbogabarn annarra atvinnugreina, í það minnsta í opinberri umræðu. Riðuveiki, gjaldþrot í fiski- og minkarækt, auk framleiðislustyrkja og tollamúra hafa löngum reynst bændum erfið. Nú virðist sem þetta gæti breyst og ný aukagrein sé að ryðja sér til rúms.

Innlent
Fréttamynd

Sex ákærðir í Baugsmálinu

Sex hafa verið ákærðir í Baugsmálinu: Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Kristín Jóhannesdóttir, Jóhannes Jónsson, Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, og tveir endurskoðendur. Í tilkynningu frá Baugi segir að fyrirtækið mun krefja íslenska ríkið um skaðabætur vegna þess tjóns sem Baugur "hefur orðið fyrir af völdum lögreglunnar".

Innlent
Fréttamynd

Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot

Maður var dæmdur í 12 mánaða fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gagnvart ungu stúlkubarni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Barnið leit á manninn sem afa sinn og sjálfur bar hann fyrir dómi að hafa litið á stúlkuna sem barnabarn sitt.

Innlent
Fréttamynd

Gill unir skyrslettudómi

Paul Gill, einn þremenningana sem slettu skyri á álráðstefnu á Hótel Nordica, var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Bótakröfu flugleiðahótela var vísað frá dómi. Gill ætlar ekki að áfrýja dómnum.

Innlent
Fréttamynd

Gill fékk 2 mánuði skilorðsbundið

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm um hádegisbil í máli ákæruvaldsins gegn Paul Gill sem, ásamt tveimur Íslendingum, var ákærður fyrir að sletta grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli. Gill var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en skaðabótakröfu Flugleiðahótela upp á rúmar tvær milljónir króna var vísað frá.

Innlent
Fréttamynd

3 ár og milljón í skaðabætur

Rúmlega fertugur karlmaður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í dag fyrir að nauðga fyrrverandi sambýliskonu sinni. Honum var jafnframt gert að greiða henni eina milljón króna í skaðabætur.

Innlent
Fréttamynd

Laxness-málið kært til hæstaréttar

Lögmaður Auðar Laxness hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Um er að ræða mál sem Auður höfðaði á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor þar sem hann var sakaður um að hafa ekki notað tilvísanir með réttum hætti í bókum sínum um Halldór Laxness, auk þess sem hann hefði notað verk Halldórs sjálfs of frjálslega.

Innlent
Fréttamynd

Landssíminn dæmdur í Héraðsdómi

Landssíminn var í Héraðsdómi í dag dæmdur til að greiða fyrirtækinu Gullveri rúma milljón króna fyrir afnot af lóð undir fjarskiptamastur í tæp þrjú ár. Lóðin hefur verið í eigu Gullvers síðan maí árið 2001 þegar fyrirtækið keypti hana af ríkinu.

Innlent
Fréttamynd

Málssókn undirbúin af krafti

Unnið er hörðum höndum að því að undirbúa málssókn nokkurra manna, sem eiga og reka fasteigasölur, á hendur ríkinu, að sögn Halldórs Backmans héraðsdómslögmanns.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur til 300 þúsund króna sektar

Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdur til 300 þúsund króna sektar fyrir að hafa í fórum sínum tæp þrjú grömm af kókaíni og ríflega hálft gramm af amfetamíni, auk þess að hafa ítrekað gerst sekur um umferðalagabrot. Þá var maðurinn einnig sviptur ökuleyfi í tvö ár.

Innlent
Fréttamynd

Mál F.f. þingfest í dag

Mál ríkislögreglustjóra gegn tíu stjórnendum Frjálsrar fjölmiðlunar og dótturfyrirtækja var í dag þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Frjáls fjölmiðlun fór á hausinn fyrir þremur árum og var gjaldþrotið eitt hið stærsta í íslenskri viðskiptasögu. Kröfur í þrotabúið námu um 2,2 milljörðum króna en aðeins fengust um 300 milljónir upp í kröfurnar.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir fjölda brota

Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg brot, m.a. fyrir tilraun til ráns á Péturspöbb á Höfðabakka, hann var tekinn próflaus og undir áhrifum fíkniefna við akstur, braut vopnalög og sveik vörur út úr verslunum með skjalafalsi.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarfélagið sýknað af kröfunni

Sveitarfélagið Rangárþing eystra var í dag sýknað af kröfu Eggerts Haukdals, fyrrum alþingismanns og oddvita Vestur-Landeyjahrepps til þrjátíu ára, um greiðslu ríflega fjögurra milljóna króna með vöxtum og dráttarvöxtum.

Innlent
Fréttamynd

Fengu skilorðsbundna dóma

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag tvo rúmlega tvítuga menn í skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og önnur minniháttar brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Annar maðurinn fékk þriggja mánaða dóm en hinn tveggja mánaða. Ákvörður refsingar þriðja mannsins var frestað, haldi hann almennt skilorð.

Innlent
Fréttamynd

Fluttu inn 130 g og 1000 töflur

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi sex ungmenni, fimm karla og eina konu, til fangavistar í dag fyrir aðild að innflutningi á eitt þúsund amfetamíntöflum og rúmlega 130 grömmum af kókaíni. Efnin voru keypt í Rotterdam og flutt til landsins með Íslandspósti, falin inni í vaxkertum.

Innlent
Fréttamynd

3 milljóna bótakröfu vísað frá

Skaðabótakröfu konu sem rann í hálku á göngustíg við Fannborg í Kópavogi veturinn 1999 var í dag hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan fór fram á tæpar þrjár milljónir króna auk vaxta.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir skattsvik

Maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 14,7 milljóna króna fyrir skattsvik og bókhaldsbrot á árunum 1998 til 2000.

Innlent
Fréttamynd

Árs fangelsi fyrir kókaínsmygl

Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi í árs fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla 226 grömmum af kókaíni til landsins innvortis þann 19. desember síðastliðinn. Kókaínið var í 59 pakkningum og var fjarlægt úr líkama mannsins með aðgerð á sjúkrahúsi. Þetta er þriðji dómurinn sem maðurinn fær og því þótti hann hæfilegur tólf mánuðir.

Innlent
Fréttamynd

Máli Hannesar vísað frá

Máli fjölskyldu Halldórs Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vísað frá vegna annmarka á málatilbúnaði stefnanda. Ekkja Halldórs, Auður Sveinsdóttir, höfðaði mál gegn Hannesi vegna meints ritstuldar í bók hans um Nóbelsskáldið.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir tilraun til manndráps

Rúmlega fertugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk vin fyrrverandi sambýliskonu sinnar með hnífi fyrir framan hús hennar við Bjargartanga í Mosfellsbæ í byrjun febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Reykjanesbær greiði 5 milljónir

Hæstiréttur dæmdi í gær Reykjanesbæ til að greiða fyrrverandi starfsmanni bæjarins tæpar fimm milljónir króna. Maðurinn vann hjá Vatnsveitu Suðurnesja en þegar sú starfsemi færðist undir Hitaveitu Suðurnesja hf. rýrnuðu lífeyrisréttindi mannsins og tókst Reykjanesbæ ekki að sýna fram á að starfið sem hann fékk við breytingarnar væri sambærilegt fyrra starfi hvað ráðningarkjör varðar.

Innlent
Fréttamynd

40 daga fangelsi fyrir úlnliðsbrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrir stundu tvítugan karlmann í fjörutíu daga fangelsi, skilorðsbundið, fyrir að ráðast á unga konu á veitingastað í Grindavík með þeim afleiðingum að hún brotnaði á báðum úlnliðum. Atvikið átti sér stað á Sjávarperlunni fyrir rúmu ári.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir unglingspiltar fá dóm

Fjórir piltar, fæddir árin 1986 og 1987, voru dæmdir í sex til tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Piltarnir játuðu allir brot sín sem voru nokkur fjöldi innbrota auk minniháttar fíkniefnabrota. Haldi piltarnir skilorð í þrjú ár fellur refsing niður.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur sneri tveimur dómum

Hæstiréttur sneri í gær við tveimur dómum þar sem ökumenn höfðu verið sakfelldir fyrir að virða ekki hvíldarákvæði EES-samningsins. Í báðum málunum hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmt bílstjórana til sektargreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins mál eins starfsmanns

Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og fyrrverandi starfsmanns. Hann var í hópi fimm lykilstarfsmanna Iceland Seafood sem hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Missagt var í fréttum Bylgjunnar í morgun að mál allra starfsmannanna hafi verið á borði Hæstaréttar í gær. 

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn

Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og nokkurra fyrrverandi starfsmanna þess. Nokkrir lykilstarfsmenn Iceland Seafood hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira.

Innlent
Fréttamynd

Nágranni heyrði skerandi óp

Skerandi angistaróp heyrðust inn til nágranna Sæunnar Pálsdóttur þegar Magnús Einarsson, eiginmaður hennar, réð henni bana. Vitnisburður nágrannans þykir grafa undan vörn Magnúsar í málinu. Þó sá nágranninn ekki ástæðu til að gera lögreglu viðvart.

Innlent
Fréttamynd

Eiginmaðurinn missti stjórn á sér

Sálfræðingur sagðist í Héraðsdómi Reykjaness rétt fyrir hádegi að hann teldi að Magnús Einarsson, sem varð konu sinni að bana á heimili þeirra í Hamraborg, hafi ekki undirbúið morðið heldur hafi hann misst stjórn á sér.

Innlent