Skroll-Lífið

Fréttamynd

Hrím opnar í Reykjavík

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar hönnunarhúsið Hrím opnaði verslun á Laugaveginum í Reykjavík en verslunin, sem leggur áherslu á innlenda og erlenda hönnun, hefur hingað til verið starfrækt í Hofi á Akureyri...

Lífið
Fréttamynd

Þessi aðhaldskjóll er algjör snilld

Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir stílisti Debenhams, Ásdís Gunnarsdóttir, aðhaldskjól frá Oroblu sem styður jafnt og þétt við líkamann eins og magasvæðið, bak, rass, mjaðmir og handarkrika...

Lífið
Fréttamynd

Fjör í Vodafonehöllinni

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Sveinbi Superman.is í Vodafonehöllinni á dansleik á vegum FM 957 þar sem plötusnúðurinn heimsfrægi Tiësto kom fram. Eins og sjá má á myndunum skemmti fólk sér vel.

Lífið
Fréttamynd

Glæsileikinn allsráðandi

Vesalingarnir, einn allra vinsælasti söngleikur leikhússögunnar, var frumsýndur á fjölum Þjóðleikhússins í flutningi einvala liðs leikara og söngvara á laugardaginn var. Þá fögnuðu Sambíóin 30 ára afmæli á Grand hótel síðasta föstudag. Afmælis- og frumsýningargestir voru stórglæsilegir í hátíðarskapi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Lífið
Fréttamynd

RUB23 opnar í Reykjavík

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar veitingastaðurinn RUB23 opnaði í vikunni í Aðalstræti í Reykjavík. Fjöldi manns mætti til að fagna með Akureyringunum Einari Geirssyni og Kristjáni Þóri Kristjánssyni veitingamönnum.

Lífið
Fréttamynd

Útgáfuteiti Jónínu Leósdóttur

Útgáfu bókarinnar Léttir - hugleiðingar harmonikkukonu eftir Jónínu Leósdóttur var fagnað í Eymundsson Austurstræti í vikunni. Eins og sjá má á myndunum var leikandi létt stemning þar sem spilað var á harmonikku og höfundur las upp úr bókinni.

Lífið
Fréttamynd

Pjattrófur fagna

Pjattrófurnar héldu upp á þriggja ára afmæli sitt á laugardaginn var á skemmtistaðnum Austur...

Lífið
Fréttamynd

Fyrsta Victoria‘s Secret verslunin opnuð á Íslandi

Meðfylgjandi myndir voru teknar í flugstöð Leifs Eiríkssonar 29. febrúar síðastliðinn þegar fyrsta Victoria‘s Secret verslunin var opnuð á Íslandi í brottfararverslun Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Victoria Secret er Íslendingum að góðu kunn en fyrirtækið er leiðandi í smásölu á snyrtivörum og undirfatnaði fyrir konur. Farþegar streymdu inn í verslunina um leið og hún opnað og höfðu úr mörgu að velja, litríkar og fallegar vörur blöstu við. Má þar nefna Victoria‘s Secret Beauty vörulínan ásamt þekktu Bombshell og VS Angel ilmvötnin, sem slegið hafa í gegn víða um heim. Einnig er sérstakt úrval af leðurvörum, töskum, nærbuxum, bolum og öðrum hátísku fylgihlutum frá Victoria‘s Secret.Hönnunin á þessari fyrstu Victoria's Secret verslun í Fríhöfninni er glæsileg í alla staði, en ljósmyndir af ofurfyrirsætum Victoria‘s Secret sem prýða verslunina undirstrika fágun, kynþokka og unglegt útlit.

Lífið
Fréttamynd

Sjáðu myndirnar frá frumsýningu Svartur á leik

Meðfylgjandi má sjá myndir sem voru teknar á frumsýningu kvikmyndarinnar Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. Troðið var út úr dyrum í Smárabíó og góð stemning á meðal frumsýnignargesta að sjá spennutryllinn sem olli ekki vonbrigðum.

Lífið
Fréttamynd

Eftirpartý - Svartur á leik

Meðfylgjandi myndir tók Sigurjón Ragnar ljósmyndari í frumsýningarteiti á veitingahúsinu Kex sem haldið var eftir frumsýningu myndarinnar Svartur á leik...

Lífið
Fréttamynd

Þarna var sko fjör

Brynjur og Útlagar, félög leikara sem lært hafa erlendis, héldu síðbúna Þorragleði um helgina í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi...

Lífið
Fréttamynd

Ímark hátíð hafin í Hörpu

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslenska markaðsdeginum sem haldinn er hátíðlegur í dag með veglegri ráðstefnu í Hörpu. Viðfangsefnin koma úr ólíkum áttum en fimm erlendir fyrirlesarar eru komnir til landsins til að flytja erindi...

Lífið
Fréttamynd

Myndir frá minningarathöfn Whitney Houston

Meðfylgjandi myndir voru teknar í minningarathöfn Whitney Houston í gær. Maðurinn sem hún var gift í 15 ár, Bobby Brown, strunsaði út stuttu eftir að athöfnin hófst því fylgdarliði hans bauðst ekki að sitja fremst í kirkjunni. Síðar sendi Bobby frá sér fréttatilkynningu um hvað hann var gríðarlega ósáttur hvernig komið var fram við fjölskyldu hans en kona hans brást í grát fyrir utan kirkjuna eins og sjá má á myndunum. Kærasti Whitney, Ray J, teygði sig hágrátandi eftir líkkistunni þegar hún var borin út kirkjugólfið og snerti hana. Þá hélt Kevin Costner aftur tárunum í minningarræðu sinni um samband hans og Whitney en þau urðu góðir vinir eftir að þau léku saman í kvikmyndinni Bodygard. Aretha Franklin meldaði sig veika en til stóð að hún myndi syngja við athöfnina. Alicia Keys grét á meðan hún söng. Þá söng Stevie Wonder og minntist söngkonunnar með fallegum orðum.

Lífið
Fréttamynd

Kjólar Whitney Houston

Meðfylgjandi má skoða kjóla söngkonunnar Whitney Houston sem féll frá um helgina, 48 ára að aldri. Whitney var ein dáðasta söngkona heims og hlaut fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Whitney lætur eftir sig eina dóttur, Bobbi Kristina, sem hún átti með fyrrverandi eiginmanni sínum, Bobby Brown.

Lífið
Fréttamynd

Whitney Houston 1963-2012

Meðfylgjandi má sjá myndasyrpu af söngkonunni Whitney Houston sem lest í gær, 48 ára að aldri. Whitney var ein dáðasta söngkona heims og hlaut fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Hún átti lengi við vímuefnavanda að stríða og fór síðast í meðferð í fyrra. Whitney lætur eftir sig eina dóttur, Bobbi Kristina, sem hún átti með fyrrverandi eiginmanni sínum, Bobby Brown.

Lífið
Fréttamynd

Baksviðs í Eurovision

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru baksviðs á Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fór í Hörpu í gærkvöldi. Lagið Mundu eftir mér, eftir Gretu Salóme Stefánsdóttur, sem er aðeins 25 ára gömul sigraði. Í öðru sæti var lagið Stattu Upp eftir Ingólf Þórarinsson og Axel Árnason.

Lífið
Fréttamynd

Gói klikkar ekki frekar en fyrri daginn

Leikarinn Gói, sem heitir réttu nafni, Guðjón Davíð Karlsson og kollegi hans, leikarinn Þröstur Leo Gunnarsson, vöktu mikla lukku áhorfenda á frumsýningu leikverksins Gói og Baunagrasið í Borgarleikhúsinu í dag. Félagarnir héldu unga fólkinu og ekki síður fullorðna fólkinu við efnið í þessari frábæru barnasýningu. Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrir og eftir sýninguna. Sjá meira um Góa og Baunagrasið hér - heimasíða Borgarleikhússins.

Lífið
Fréttamynd

Barnshafandi Hafdís Huld í góðum fíling

Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónleikum Hafdísar Huldar, sem er gengin rúma fjóra mánuði með sitt fyrsta barn, á Gljúfrasteini sem haldnir voru í tengslum við Safnanótt í gærkvöldi...

Lífið
Fréttamynd

Beyonce sýnir frumburðinn

Beyonce og hennar heittelskaði, Jay Z sýndu heiminum fallegu stúlkuna sína Blue Ivy á nýrri heimasíðu tileinkaðri henni...

Lífið
Fréttamynd

Kærleikur og jákvæðir straumar

Gríðarlega góð stemning skapaðist þegar þúsund súkkulaðibrosum var dreift á árlegri ástar- og hvatningahátíð Bergljótar Arnalds í miðbænum....

Lífið