Byrgið

Íhugar að kæra birtingu myndbandsins
Ólöf Ósk Erlendsdóttir, íhugar nú að kæra birtingu á myndbandi sem gengið hefur ljósum logum á netinu sýnir hana og Guðmund Jónsson, forstöðumann Byrgisins í kynlífsathöfnum. Hún segir fráleita fullyrðingu Guðmundar um að sér hafi verið nauðgað.

Viðurkenndu að mistök hefðu átt sér stað gagnvart Byrginu
Fyrir fjórum árum flutti félagsmálaráðuneytið fjárframlag Byrgisins á nýja kennitölu, þar sem líknarfélagið var gjaldþrota. Ríkisendurskoðun gaf leyfi fyrir þessu að uppfylltum ströngum skilyrðum sem ekki var fylgt eftir.

Bað stjórn Byrgisins um að krefjast lögreglurannsóknar
Ólafur Ólafsson, læknir Byrgisins og fyrrverandi landlæknir, bað stjórn meðferðarheimilisins um að krefjast lögreglurannsóknar vegna meintrar misnotkunar forstöðumanns á skjólstæðingum sínum. Hann segir að lögmaður Byrgisins hafi kært innan við sólarhring eftir að Kompásþáttur um Byrgið var sýndur viku fyrir jól.