Fastir pennar

Fréttamynd

Húsin í bænum

Á næstu mánuðum og árum mun yfirbragð miðbæjar Reykjavíkur taka töluverðum breytingum þegar gömul hús verða rifin og önnur ný rísa í þeirra stað. Þetta er fagnaðarefni því fyrirhugaðar framkvæmdir sýna að dauði miðborgarinnar sem verslunar- og athafnasvæðis er stórlega ýktur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fréttablaðið hefur ekki skoðanir

Það er ekki að ástæðulausu að forystugreinar Fréttablaðsins eru skrifaðar undir fullu nafni, ólíkt því sem tíðkast til dæmis hjá Morgunblaðinu og Blaðinu. Ólíkt þessum blöðum vega starfsmenn Fréttablaðsins ekki úr launsátri í þeim skoðanagreinum sem birtast í blaðinu.>

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjölbreyttir fjölmiðlar

Þegar eitthvað er endurtekið nógu oft fer það að hljóma trúan­lega, hvort sem það er satt eða ekki. Þessi aðferð við skoðanamyndun kallast áróður og fáir þekkja áhrifamátt hans betur en stjórnmálamenn. Hluti af áróðri er að búa til kröftug og gildishlaðin slagorð en einu slíku hefur einmitt verið beitt markvisst í langan tíma gegn þeim fjölmiðlum sem starfa undir merkjum 365 samsteypunnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dýrkeypt vaxtahækkun Seðlabankans

Hækkun stýrivaxta Seðlabankans sem tekur gildi í vikunni, var meiri en margir spáðu, og viðbrögð markaðarins voru þau að krónan styrktist enn frekar. Þegar saman fer vaxtahækkun og styrking krónunnar er útlitið ekki bjart fyrir útflutningsatvinnuvegina.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hver er glæpur Fréttablaðsins?

Koma sýslumanns á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins í gær markar svartan dag í íslenskri fjölmiðlasögu. Eftir þessa aðgerð búa blaðamenn á Íslandi við annað og verra starfsumhverfi en áður.

Fastir pennar
Fréttamynd

Húmor ekki afsal alvöru

Enn er ekki tímabært að spyrja að leikslokum um hina eina orrustu Davíðs, þar sem fullur sigur hlaust ekki, fjölmiðlafrumvarpsmálið, enda hafa harðir andstæðingar hans í því máli eins og Egill Helgason og Sigurður G. Guðjónsson lýst því síðar yfir, að rás viðburða hafi sýnt þeim fram á nauðsyn fjölmiðlalaga á litlum markaði eins og hinum íslenska.

Fastir pennar
Fréttamynd

Innmúruð og ófrávíkjanleg tryggð

Í ljósi þeirra upplýsinga, sem liggja nú fyrir og verða ekki vefengdar, virðist erfitt að verjast þeirri ályktun, að ritstjóri <em>Morgunblaðsins</em> hafi ásamt framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins og þáverandi lögmanni blaðsins og núverandi hæstaréttardómara – í krafti innmúraðrar og ófrávíkjanlegrar tryggðar við ónefndan mann! – átt aðild eða jafnvel frumkvæði að lögsókninni gegn Baugi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Meðvirkt þjóðfélag

Hinir mörgu þættir Baugsmálsins og ýmissa annarra stórmála á undanförnum árum sýna að þó að íslenskt samfélag kunni að vera nútíminn holdi klæddur í okkar eigin augum fer því fjarri að við séum nútímaleg eða upplýst í daglegri glímu okkar við breyskleikana í hinu opinbera lífi þjóðarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Stólaskipti og nýir ráðherrar

Með brotthvarfi Davíðs Oddssonar úr ríkisstjórn verða þáttaskil í íslenskum stjórnmálum og búast má við að stjórnmálaumræðan breytist, en hvernig, verður framtíðin að skera úr um. Davíð hefur oft látið að sér kveða svo eftir verður munað, en dagurinn í gær var langt frá því að vera toppurinn á annars glæsilegum ferli hans.

Fastir pennar
Fréttamynd

Leyndin yfir velgengni Evrópu

Þrátt fyrir mestu velmegun, velferð og öryggi í heimi og til muna stystan vinnutíma almennings verður ekki sagt að fréttir frá álfunni endurspegli almenna ánægju.

Fastir pennar
Fréttamynd

Notar hún sykur ?

Ekki nóg með það að við þykjumst hafa þarfara við peningana að gera en sjá til þess að allir hópar samfélagins geti lifað við reisn, heldur sýnum við gjarnan þeim sem hallar undan fæti hjá einnig hina mestu óvirðingu í umgengi. Samt kosta mannasiðir ekki neitt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Snemmbúið hausthret

Þessi atburðarás hlýtur líka að vera samstarfsflokknum – Framsóknrflokknum – áhyggjuefni, og voru þó áhyggjurnar á þeim bæ nægar fyrir. Það skyldi því engan undra þótt sumir í þeim flokki væru farnir að hugsa sér til hreyfings, ekki síst vegna sífellt lakari stöðu hans í skoðnakönnunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ónefndur maður og hirðmenn hans

Orð Styrmis Gunnarssonar í bréfi til Jónínu Benediktsdóttur um "innmúraða" og "ófrávíkjanlega" tryggð Jóns Steinars við "ónefndan mann" segja meira en mörg orð um það andrúmsloft sem fylgdi stjórnarháttum Davíðs Oddssonar.

Fastir pennar
Fréttamynd

"Gott að eiga þessa menn að"

Efni tölvupóstanna vekur margvíslegar spurningar - sumar ansi óþægilegar - um þræði valda og áhrifa í íslensku þjóðfélagi. Það vekur einnig spurningar um hvers konar fjölmiðill eða stofnun Morgunblaðið er undir stjórn núverandi ritstjóra.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tryggjum umferðaröryggi um Óshlíð

Á undanförnum árum hafa verið gerðar ýmiss konar endurbætur á veginum um Óshlíð, svo sem með uppsetningu öryggisgirðinga og vegskálum. Það er eins og menn hafi ekki haft dug í sér til að stíga skrefið til fulls með því að þrýsta á um jarðgöng, svo eftir yrði tekið

Fastir pennar
Fréttamynd

Kunnuglegt rímnakvæði

Það er alltaf hætta á ferðum þegar stjórnmál blandast inn í opinberan málarekstur gagnvart viðskiptafyrirtækjum. Því heitari og kappsamari sem pólitíkin er, því hættulegra.

Fastir pennar
Fréttamynd

Margar víddir mannshugans

Mig rak í rogastanz, þegar ég þóttist komast að því, að óperurök Mozarts virðast einnig eiga við um kvikmyndir og þá hugsanlega með líku lagi um leikhúsverk.

Fastir pennar
Fréttamynd

Öryggisnet hins opinbera

Hugmyndin um hið alltumlykjandi opinbera kerfi er hættuleg í eðli sínu og beinlínis andsnúin lífinu enda sjálfsbjargarviðleitni grunneðli í öllum lifandi verum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Áfall fyrir ákærendur

 Þótt gert sé ráð fyrir því í lögum að lögreglustjórar, og þar á meðal ríkislögreglustjóri, ákæri í málum sem rannsökuð hafa verið hjá embættum þeirra virðist ekki úr vegi að velta því fyrir sér hvort ekki sé rétt að ríkissaksóknari fari með ákæruvaldið í svo viðamiklum málum sem hér um ræðir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Keisarinn er nakinn

Hin hliðin á bandarísku þjóðlífi hefur ekki verið eins til sýnis. Sú hliðin sem snýr að fátæktinni, vesöldinni, sem ríkir víða í þessu landi tækifæranna. Hún varð ekki lengur falin þegar Katrín reið yfir og skildi eftir sig vegsummerkin og fólkið í allsleysi sínu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Samgöngumiðstöð Íslands?

Það er yfir höfuð býsna eftirsóknarvert fyrir sveitarfélag að hýsa innanlandsflugið fyrir margra hluta sakir og talsverðir viðskiptahagsmunir í húfi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Í átt til múslímskrar upplýsingar

"Íslam eftir siðaskipti myndi hvetja múslíma sem búa utan múslímaheimsins til að koma út úr gettóunum, sem þeir hafa sjálfviljugir reist yfir sig, og hætta að hafa svona miklar áhyggjur af því að loka dætur sínar inni frá umheiminum."

Fastir pennar
Fréttamynd

Tvisvar verður gamall maður barn

Það er því miður ekki til nein formúla fyrir því hvernig menn eigi að verja tíma sínum og njóta lífsnautnarinnar. Sumir fá útrás með því að vinna, aðrir hamast við að skemmta sér eða ferðast eða taka til i garðinum eða sitja bara fyrir framan sjónvarpið og bíða eftir næsta þætti.

Fastir pennar
Fréttamynd

Styrkur í stórum sveitarfélögum

Landfræðilegir staðhættir og samgöngur skipta miklu máli varðandi sameiningu sveitarfélaga. Það er grundvallaratriði að góðar samgöngur séu innan sama sveitarfélags, og þar er það ríkið sem verður að koma til skjalanna. Skólamál skipta líka miklu máli, því áður fyrr var grunnskóli í nær hverjum hreppi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvenær sækir maður um?

...kemur svo inn í stofu, rjóður og vandræðalegur og segir að endanleg ákvörðun muni liggja fyrir senn en þangað til standi umsókn sín – eiginlega...

Fastir pennar
Fréttamynd

Davíð bendir á Geir Haarde

Auðvitað hefði Davíð átt að afgreiða þetta mál áður en hann yfirgefur utanríkisráðneytið, í stað þess að benda á Geir H. Haarde. Ef hann er algerlega á móti því að Íslendingar keppi að setu í öryggisráðinu átti hann að segja það hreint út í stað þess að draga menn og draga, innanlands og utan, á endanlegri ákvörðun.

Fastir pennar
Fréttamynd

Framboð og eftirspurn

Svo verða uppáþrengjandi frambjóðendur að hugsa með sér hvort þögnin geti ekki verið happadrýgri en sama morfísstefið, aftur og aftur.

Fastir pennar