Hafa rænt úkraínskum börnum í massavís Yfirvöld í Rússlandi hafa rænt fjölmörgum úkraínskum börnum frá yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og ættleitt þau til fólks í Rússlandi. Meðal annars hefur verið logið að börnunum að úkraínskir foreldrar þeirra vilji þau ekki. 14.10.2022 10:19
Bein útsending: Segja Trump enn ógna lýðræðinu í Bandaríkjunum Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra heldur opin fund í kvöld þar sem til stendur að skoða hugarástand Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, þegar árásin átti sér stað. Einnig ætla meðlimir nefndarinnar að ítreka það að lýðræði Bandaríkjanna stafi enn ógn af Trump og fylgjendum hans. 13.10.2022 16:00
Ekki dæmdur til dauða fyrir árásina í Parkland Kviðdómendur hafa komist að þeirri niðurstöðu að Nikolas Cruz, sem myrti sautján manns í skóla í Parkland í Flórída árið 2018, eigi ekki að vera tekinn af lífi. Þetta var gert opinbert rétt í þessu en saksóknarar höfðu farið fram á dauðadóm eftir að Cruz, sem er fæddur árið 1998, játaði ódæðið í Marjory Stoneman Douglas-skólanum. 13.10.2022 15:18
Vígamenn tengdir al-Qaeda tóku Afrin í Sýrlandi Vígamenn öfgahópsins Hayat Tahrir al-Sham, eða HTS, hafa tekið yfir stjórn borgarinnar Afrin í samnefndu héraði í Sýrlandi. HTS er afsprengi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Sýrlandi en vígamennirnir náðu tökum á borginni eftir harða bardaga við meðlimi öfgahópsins Al-Jabha Al-Shamiyyah. 13.10.2022 14:51
Geimskot frá Langanesi misheppnaðist Forsvarsmenn skoska fyrirtækisins Skyrora tilkynntu í morgun að geimskot hefði verið reynt frá Langanesi um síðustu helgi. Geimskotið misheppnaðist þó og eldflaugin hafnaði í sjónum skammt frá skotstaðnum. 13.10.2022 13:39
Sprengjum rignir enn yfir borgir Úkraínu Ráðamenn í Kænugarði segja að það muni taka nokkrar vikur að gera að fullu við orkuver og dreifikerfi Úkraínu eftir umfangsmiklar árásir á innviði landsins í vikunni. Um þriðjungur rafmagnsinnviða landsins er sagður hafa orðið fyrir skemmdum og rafmagnsleysi er víða. 13.10.2022 10:05
Warzone og Quiz hjá Babe Patrol Stelpurnar í Babe Patrol ætla að hvíla sig á hryllingsleikjum í kvöld. Í stað þess að láta reyna á taugarnar ætla þær að láta reyna að viðbrögðin og herkænskuna í Warzone. 12.10.2022 20:31
Lögðu hald á margar þrívíddarprentaðar byssur og íhluti Lögregluþjónar í Lundúnum lögðu nýverið hald á magar þrívíddarprentaðar byssur og mikið magn skotfæra, sem talið er að sé stærsti slíki fundur í sögu Bretlands. Vopnin og íhlutir til að framleiða fleiri vopn fundust í íbúð í borginni en lögreglan telur að umfangsmikil framleiðsla slíkra skotvopna hafi átt sér stað þar. 12.10.2022 16:43
Heitir Sádum afleiðingum vegna skerðingar á olíuframleiðslu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hét því í gær að ákvörðun OPEC+ ríkjanna svokölluðu um að draga verulega úr olíuframleiðslu myndi hafa afleiðingar fyrir Sádi-Arabíu, sem leiða samtökin og eiga að heita bandalagsríki Bandaríkjanna. Þingmenn Demókrataflokksins hafa kallað eftir því að Bandaríkin frysti allt varnarsamstarf með einræðisríkinu. 12.10.2022 15:49
Lögregluþjónn ákærður eftir skothríð á tvo táninga Saksóknarar í San Antonio í Texas í Bandaríkjunum ákærðu í gær lögregluþjón sem skaut sautján ára dreng á bílastæði við McDonalds um þar síðustu helgi, 2. október. James Brennand, lögregluþjóninn, skaut hinn sautján ára gamla Erik Cantu, sem liggur á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi. 12.10.2022 13:46
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti
Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti