Viggó valinn leikmaður mánaðarins í Þýskalandi Viggó Kristjánsson, leikmaður Stuttgart, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta var í dag valinn besti leikmaður nóvembermánaðar. 7.12.2020 23:00
Búið að sparka þjálfara Birkis og Hólmberts hjá Brescia Brescia, lið Birkis Bjarnasonar og Hólmberts Arons Friðjónssonar í ítölsku B-deildinni, hefur ákveðið að reka þjálfara sinn, Diego López. Entist hann aðeins tvö mánuði í starfi. 7.12.2020 22:31
Kristian kom inn í sínum fyrsta leik og Elías Már lék allan leikinn í tapi Hinn 16 ára gamli Kristian Hlynsson kom inn af varamannabekk varaliðs Ajax í fyrsta sinn í kvöld er liðið gerði jafntefli í hollensku B-deildinni. Elías Már Ómarsson lék allan leikinn er Excelsior tapaði á heimavelli fyrir Volendam. 7.12.2020 22:15
Ings skaut Southampton upp í fimmta sætið Southampton vann Brighton & Hove Albion í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 2-1 en Danny Ings skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 81. mínútu leiksins. 7.12.2020 21:55
Guðni segir að Ísland stefni á annað efstu sætanna Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir sambandið og íslenska landsliðið verða að stefna á annað efstu sætanna í undankeppni HM í knattspyrnu. Þetta kom fram í viðtali Guðna við íþróttavef mbl.is fyrr í kvöld. 7.12.2020 21:36
Noregur og Rússland komin áfram með fullt hús stiga Noregur og Rússland flugu upp úr riðlakeppni Evrópumóts kvenna í handbolta með öruggum sigrum í síðustu leikjum sínum í riðlakeppninni í kvöld. Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í kvöld. 7.12.2020 21:21
Umboðsmaður Pogba segir miðjumanninn óhamingjusaman og að hann þurfi að komast frá Manchester Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba, segir að miðjumaðurinn sé óhamingjusamur og þurfi að yfirgefa Manchester United hið snarasta. 7.12.2020 20:31
Jón Dagur í byrjunarliði er AGF lagði Bröndby AGF vann góðan 3-1 sigur á Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Alls komu tveir íslenskir landsliðsmenn við sögu. Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði AGF á meðan Hjörtur Hermannsson kom inn af varamannabekk Bröndby í hálfleik. 7.12.2020 20:00
Helena Ólafs um mál Jóns Þórs: Fyrst og fremst sorglegt Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi Pepsi Max Markanna á Stöð 2 Sport, sem og fyrrum leikmaður og þjálfari íslenska landsliðsins, segir stöðu íslenska kvennalandsliðsins í dag fyrst og fremst sorglega. 7.12.2020 19:46
Ótrúleg endurkoma hjá Spánverjum á meðan Þýskaland og Pólland skildu jöfn Tveimur spennandi leikjum var að ljúka á Evrópumótinu kvenna í handbolta nú rétt í þessu. Spánn vann Tékkland 27-24 eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik. Á sama tíma gerðu Þýskaland og Pólland jafntefli, 21-21. 7.12.2020 19:15