Reglur um farsímanotkun barna í nær öllum grunnskólum Meirihluti skóla hefur sett reglur um farsímanotkun barna. Oftast er hún háð takmörkunum og jafnvel staðsetningu. Algengara er að eldri börn megi vera með síma en þau yngri. Stundum þurfa börnin símann til að komast í almenningssamgöngur og fá því að hafa hann í töskunni. 28.11.2023 15:56
Flutningi Hussein fjölskyldunnar frestað til laugardags Fjölskylda Hussein Hussein flýgur til Grikklands á laugardag. Þeim hafði áður verið tilkynnt að þau myndu fara í dag. Hussein verður einn eftir á landinu en það er samkvæmt ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu. Landsréttur á enn eftir að úrskurða í máli fjölskyldunnar. 28.11.2023 14:34
Segja lífeyrissjóðina ekki mæta Grindvíkingum nægilega vel Forsvarsmenn verkalýðsfélaga í Grindavík segja lífeyrissjóði ekki mæta Grindvíkingum eins vel og bankar og íbúðalánasjóður. Þeir mótmæli við stærstu skrifstofur þar til það verði gert. 28.11.2023 10:16
Vill ekki vera framseld „í gæsluvarðhald í óskilgreindan tíma“ Edda Björk Arnardóttir segir að hún hafi ekki gefið sig fram til lögreglu svo hægt sé að framselja hana til Noregs vegna þess að ekki sé komin dagsetning á réttarhöld sem þar eiga að fara fram í máli hennar. Handtökuskipun var gefin út í máli hennar og lýst eftir henni í vikunni. Íslenskir dómstólar hafa samþykkt handtökuskipun og fallist á framsal. 28.11.2023 09:21
Óttast að Hussein verði „einn í íbúðinni, fastur í rúminu“ ÖBÍ réttindasamtök fordæma ómannúðlega ákvörðun íslenska ríkisins um að skilja Hussein Hussein, fatlaðan umsækjanda um alþjóðlega vernd, frá fjölskyldu sinni. Lögfræðingur fjölskyldunnar segir Hussein ekki tryggð nein þjónusta við brottför fjölskyldunnar. 27.11.2023 16:02
Vaknaði við byssuskot nærri heimili sínu í Freetown Framkvæmdastjóri Auroru velgjörðarsjóðs í Síerra Leóne segir mesta hættuástandið í Freetown í Síerra Leóne liðið en að þau haldi áfram að meta aðstæður. Forseti landsins tilkynnti í ávarpi í gær að búið væri að handtaka flesta uppreisnarmennina. Ráðist var á vopnabirgðir hersins og fjöldi fanga frelsaður 27.11.2023 11:36
Útgöngubann í Síerra Leóne eftir árásir og frelsun fanga Útgöngubann er í gildi í Síerra Leóne eftir að vopnaðir menn ruddust inn í fangelsi í landinu og frelsuðu fanga. Samkvæmt yfirvöldum áttu árásirnar sér stað í gærmorgun, í fjölda stórra fangelsa. Fjórtán Íslendingar eru í Síerra Leóne samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins. 27.11.2023 07:00
Ástin og þráin alltaf eins Sagnfræðingur segir ástina alltaf eins. Það megi lesa úr gömlum ástarbréfum sem séu til á Kvennasögusafninu. Oftast sé þráin mest í upphafi sambands og svo taki meiri praktík við. Skekkja sé þó í safninu því flest bréfin komi frá pörum þar sem kom til sambands. Önnur hafi líklega endað í eldinum. 26.11.2023 08:01
Álag aukist og full þörf á nýrri geðdeild Álag hefur aukist á geðsviði Landspítalans í samanburði við síðasta ár. Álagið er í takt við fólksfjölgun en fleiri erlendir ríkisborgarar leita þangað en áður. Yfirlæknir segir starfsmenn ráða við álagið. 25.11.2023 23:21
Mesta tjónið á gólfinu í Gerðubergi eftir leka í nótt Leki varð í Gerðubergi í nótt. Mesta tjónið er á gólfefninu að sögn deildarstjóra á bókasafninu. Búið er að rífa upp gólfefni í þremur rýmum. Safnið er þó enn opið og hægt að heimsækja bókasafnið og önnur rými þess um helgina. 24.11.2023 16:04