Party Zone listinn fyrir júní

Party Zone listinn fyrir júní 2021. Allt það heitasta sem er að gerast í danstónlistinni þessa dagana að mati þáttarstjórnenda og helstu plötusnúða þáttarins í rúmlega tveggja tíma þætti. Fjölbreyttur, flottur og sumarlegur listi þar sem meðal annars má heyra mjög flott remix af gömlum slögurum og nokkur eldheit og óútgefin lög sem eiga eftir að hljóma áfram í allt sumar. Listann sjálfan má sjá á Facebook síðu þáttarins, facebook.com/partyzone.is. Múmía þáttarins er síðan topplag Party Zone listans fyrir 25 árum síðan og einnig lag sem var að finna á hinum goðsagnakennda Party Zone '96 mixdiski. Hlustið og njótið!

1154
2:14:51

Vinsælt í flokknum Party Zone