Jólakveðja Kópavogsbæjar - Hin fyrstu jól

Píanóleikarinn og jazz tónskáldið Sunna Gunnlaugsdóttir er bæjarlistamaður Kópavogsbæjar 2021 og Ingibjörg Þorbergs (1927-2019) var gerð að heiðurslistamanni Kópavogsbæjar árið 2012. Jólakveðja Kópavogsbæjar 2021 er undurfallegt jólalag Ingibjargar, Hin fyrstu jól, við texta Kristjáns frá Djúpalæk í flutningi Sunnu og hljómsveitar. Hljómsveit skipa þau Margrét Eir, söngkona, Leifur Gunnarsson, bassaleikari og Scott McLemore, trommuleikari. Upptaka var gerð í Salnum í Kópavogi í desember 2021.

93
02:57

Vinsælt í flokknum Jól