Ísland í dag - Ef hún væri ekki lögreglustjórinn væri hún ljósmóðir

Hefði hún ekki orðið lögfræðingur væri hún hjúkrunarfræðingur og í raun langaði hana að verða ljósmóðir. Hún elskar dýr, sérstaklega kýr, fugla og hunda enda alin upp á sveitabæ. Við erum að tala um nýjan lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, Höllu Bergþóru Björnsdóttur sem saknar enn Akureyrar þar sem hún var síðast lögreglustjóri en kann þó vel við sig á nýjum stað, Grafarholtinu í Reykjavík. Sindri kíkti í morgunkaffi til Höllu og fékk að kynnast þessari kraftmiklu konu. Ísland í dag klukkan 18:55 strax á eftir fréttum og sporti.

2894
12:24

Vinsælt í flokknum Ísland í dag