Litla-Grá færð úr flugvélinni
Litla-Grá var fyrri mjaldrasystranna til að vera færð úr flugvélinni og slakað niður á jörð. Þar komu þjálfarar systranna að og báru saman bækur sínar. Stuttu seinna færði lyftari hana síðan upp á sérútbúinn flutningabíl og Litla-Hvít fylgdi í kjölfarið.