Vonast eftir framkvæmdaleyfi Hvammsvirkjunar í febrúar
Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár.