Óreiða í flugstöðinni en fjöldahjálparstöðin góð

Sofie Vincent Nielsen var á leið frá Kaupmannahöfn til Seattle með Icelandair. Daninn sagði það hafa verið pirrandi aðstæður að vera föst í flugvélinni tímum saman en um leið og farþegarnir hefðu áttað sig á því að lítið væri hægt að gera í því þá slökuðu þeir á. Á flugvellinum hafi hins vegar verið mikil óreiða. „Það var erfitt að fá upplýsingar. Það var óþægilegt að vita ekki hvert maður á að fara og hvað er að fara að gerast. Þessi fjöldahjálparstöð kom hins vegar skemmtilega á óvart. Þetta er miklu betra en við áttum von á þegar við yfirgáfum flugvöllinn.“

766
02:17

Vinsælt í flokknum Fréttir