Flokkurinn tekur ekki afstöðu í bili
Formaður Samfylkingarinnar segir ekki tímabært að flokkurinn taki afstöðu til framtíðar Ágústar Ólafs Ágústssonar í þingflokki Samfylkingarinnar. Hann hafi ekki borið yfirlýsingu sína um málsatvik þar sem hann áreitti konu undir flokkinn. Konan segir frásögn Ágústar ekki í samræmi við hennar upplifun.