Hannah Green jók forystu sína á KPMG-mótinu

Hin ástralska Hannah Green jók forystu sína á KPMG-mótinu, þriðja risamóti ársins í kvennagolfinu. Hún lék á 4 höggum undir pari í gær og er samtals á 7 undir þegar keppni er hálfnuð. Green hefur aðeins fengið einn skolla á holunum 36. Þetta er annað ár hennar í LPGA-mótaröðinni og hún bíður eftir sínum 1. sigri.

1
00:39

Vinsælt í flokknum Sportpakkinn