Bílastæðasjóður

Ljóst er að það eru ekki einungis hin ýmsu góðgerðar mál sem njóta góðs af Reykjavíkurmaraþoninu sem fer fram í dag. Árvöklir útsendarar Bílastæðasjóðs sjá til þess að sjóðurinn fá nefnilega sinn skerf líka. Á túninu til móts við Umferðarmiðstöðina BSÍ voru í það minnsta þrír bílastæðaverðir önnum kafnir við að sekta fólk sem lagt hafði bílum sínum upp á gangstéttar og inn á tún. Ætla má að þarna hafi nokkrum hundruðum bíla verið lagt ólöglega þannig að líklegt er að sjóðurinn raki vel inn í dag.

2847
00:08

Vinsælt í flokknum Harmageddon