Stóru málin - Skjaldborgin - Ódi Waage
"Hús minna drauma varð hús martraða. Tilhugsunin að borga með sér út úr því eftir að hafa tapað öllu í því, það bara kom ekki til greina að borga eina krónu með húsinu," segir júdóþjálfarinn Ódi Waage. Ódi segir að eftir tuttugu ára hjónaband þar sem þau hjónin hafi borgað samviskusamlega af skuldum sínum og aldrei spennt bogann hátt hafi þau verið á götunni og ekki átt neitt. "Á tveimur árum er ég að fara að flytja í fjórða skipti. Það er rosalega gaman með sjö manna fjölkskyldu," segir Ódi.