Masterchef - Einn af þremur fer út í kvöld

Í kvöld kemur í ljós hvaða tveir keppendur fara alla leið í úrslitaþátt MasterChef Ísland. Gunnar Helgi Guðjónsson, Jenný Rúnarsdóttir og Skarphéðinn Smith standa þrjú eftir og berjast um titilinn fyrsti Meistarakokkur Íslands. Keppendurnir hafa tekið þátt í fjölbreyttum þrautum, sýnt fram á yfirburði í eldamennsku, kænsku, þrautseigju og verið móttækileg fyrir ráðleggingum dómara en dómnefndin í Masterchef Íslands er mönnuð þeim Rikku, sjónvarpskokkinum góðkunna, Ólafi Erni Ólafssyni og Eyþóri Rúnarssyni. Masterchef er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 20.10.

1879
00:35

Vinsælt í flokknum Stöð 2