Í bítið - Sigurður Guðmundsson um Landsmót UMFÍ 50+
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Húnaþingi vestra á Hvammstanga helgina 24.-26. júní. Mótið er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða fyrirlestrar og sýningahópar. Allir, jafnt ungir sem eldri, eiga að finna eitthvað við sitt hæfi þessa helgi sem mótið fer fram. Sigurður Guðmundsson er framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ 50+.