Ný smit í Færeyjum eftir Ólafsvöku
Fólki sem greinst hefur með kórónuveiruna í Færeyjum hefur fjölgað gríðarlega síðustu daga. 38 greindust með virkt smit í gær en aldrei hafa fleiri greinst á einum degi í Færeyjum. 54 hafa nú greinst með veiruna á þremur dögum í Færeyjum.