Skoðanir Guðna Th. forseta Íslands

„Ég hvet öll ungmenni til þess að fylgja eigin sannfæringu. Ekki láta einhverja áhrifavalda segja þér hvað þú átt að hugsa, hvað þú átt að kaupa, hvað þú átt að gera. Vertu þú sjálf, vertu þú sjálfur. Ekki láta plata þig,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti. Það fékkst ekki meiri svívirðing á nöfn áhrifavalda, sama hvað var reynt. Sjálfur er Guðni á Fésbók eins og hann kallar hana. Hann segist ekki telja „læk“-in, en er meðvitaður um að þau gætu verið fleiri. „Ég kann ágætlega við Fésbók. Ég hef reyndar farið þar líka þá braut að birta vikupistla sem mér skilst að brjóti öll lögmál um lengdir. Í einhverjum samfélagsmiðlafræðum eiga statusar að vera stuttir og hnitmiðaðir og frekar oft heldur en sjaldan en ég kann ágætlega við að hafa þá meginreglu að birta pistla vikulega þar sem ég fer yfir mín embættisstörf í liðinni viku. Ég veit að ég gæti fengið fleiri læk ef ég stytti pistlana og hefði þá fleiri,“ sagði Guðni.

0
1:07:27

Næst í spilun: Skoðanabræður

Vinsælt í flokknum Skoðanabræður