Sóli Hólm sem Gísli Einars endaði blindfullur á Gullöldinni

Spjallþátturinn Föstudagskvöldið með Gumma Ben var á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld og eins og síðasta föstudagskvöld voru skemmtileg leikin atriði með Sóla Hólm. Fyrir viku fór Sóli Hólm í Rikka G búninginn og sló rækilega í gegn. Að þessu sinni var Sóli Hólm sjónvarpsmaðurinn Gísli Einars og það í maraþon útsendingu Landans en Landinn á RÚV var í beinni útsendingu í einn sólahring á dögunum. Meðal gesta í útsendingu Landans var hvítvínskonan sem Hjálmar Örn er líklega þekktastur fyrir. Gestir þáttarins í kvöld voru þau Hjálmar Örn, Emmsjé Gauti og Salka Sól. Hér að neðan má sjá þessi skemmtilegu atriði.

38564
05:40

Vinsælt í flokknum Föstudagskvöld