Ísland í dag - Aldrei of seint að finna ástina

Það er aldrei of seint að finna ástina! Það sannaðist þegar Vala Matt fór vestur á Strandir og heimsótti hjónin Kristínu Einarsdóttur og Gunnar Jóhannsson, en þau voru skólafélagar sem táningar á Reykjum. Þegar þau svo hittust áratugum seinna á skólamóti skólans urðu þau skyndilega og mjög óvænt yfir sig ástfangin sem kom þeim báðum alveg að óvörum. Þau voru þá orðin sextug og hvorugt að leita sér að maka. Eftir aðeins tveggja vikna samveru ákváðu þau að fara að búa saman og giftu sig svo í framhaldinu. Allt gekk mjög hratt og í dag lifa þau hamingjusömu lífi í Hveravík á Ströndum. Ástin finnst á ólíklegustu stöðum og á ólíklegustu tímum.

12307
11:12

Vinsælt í flokknum Ísland í dag