Urðu að öllum líkindum úti á Sólheimasandi
Bráðabirgðaniðurstaða krufningar á líkum tveggja kínverskra ferðamanna, karlmanns sem fæddur var 1997 og konu sem fædd var 1999, sem fundust á Sólheimasandi þann 16. janúar síðastliðinn bendir til þess að fólkið hafi orðið úti í óveðri sem gekk yfir dagana þar á undan.