Íslenskum kvikmyndagagnrýnendum hótað ofbeldi

Í síðustu viku rifjaði Stjörnubíó upp ofbeldishótanir sem kvikmyndagagnrýnandi Fréttablaðsins fékk fyrir nokkrum árum. Í þessari viku var Tómas Valgeirsson, fyrrum gagnrýnandi DV, gestur þáttarins. Hann tjáði sig um þær ógnanir sem hann varð fyrir á tímabili sínu sem kvikmyndagagnrýnandi. Stjörnubíó er á dagskrá X977 alla sunnudaga klukkan 12:00. Þar fjallar Heiðar Sumarliðason, ásamt gestum, um kvikmyndir og sjónvarpsþætti á mannamáli. Í nýjasta þættinum var fjallað um kvikmyndina Us og Ísold Uggadóttir, leikstjóri, kom í áhugavert viðtal.

84
02:22

Vinsælt í flokknum Stjörnubíó