Bítið - Móðir berst fyrir lífi barns síns

Harpa Henrysdóttir er kennari á Ísafirði sem nýverið greindi opinberlega frá þeim nöturlegu aðstæðum sem þrettán ára sonur hennar stendur frammi fyrir. Hann var í síðustu viku útskrifaður af barna og- unglingageðdeild Landspítalans eftir stutta innlögn í kjölfar þriðju sjálfsvígstilraunar sinnar á síðustu 10 mánuðum. Harpa segir son sinn nauðsynlega þurfa á meðferðarinnlögn að halda, en samkvæmt þeim upplýsingum sem Harpa fékk á Barna og unglingageðdeild getur sú bið tekið allt að tíu til tólf mánuði.

815
15:44

Vinsælt í flokknum Bítið